Þjóðlíf - 01.04.1989, Síða 61

Þjóðlíf - 01.04.1989, Síða 61
íslenskar rannsóknir VÍSINDI Birki - nýjung í land- Birkiö á barðinu. Dæmi um hvernig birkiskógar hafa látið undan síga í aldanna rás. Rannsóknir sýna að birki er duglegur landnemi og getur af sjálfsdáðum breiðst út á örfoka land við skógartorfur og myndað nýja skóga. (Ljósmynd Borgþór Magnússon) græðslu „í þann tíð var ísland viði vaxið milli fjalls og fjöru.“ Hver kannast ekki við þessi orð? Þau eru tákn um þær breytingar sem ætlað er að hafi orðið á gróðurfari landsins allt frá fyrstu öldum íslandsbyggðar. Menn hafa nú að minnsta kosti í nokkra áratugi velt vöngum yfir því hvað megi lesa úr þessari fullyrðingu og sýnist sitt hverjum. Bæði er það að ekki eru allir á einu máli um hversu mikill hluti landsins hafi verið gróinn og eins hafa skoð- anir verið skiptar um það hvernig þessi viður var í reynd. Var hann hár og gróskumikill birkiskógur eða var þetta ef til vill að miklum hluta kjarr og víðirunnar? Hvað sem því líð- ur hefur þessi umrædda fullyrðing Ara fróða verið mörgum töm á tungu og hún verið eins konar kjarni í þeirri umræðu sem farið hefur fram. í kjölfar umfangsmikilla breytinga á bú- skaparháttum, aukinnar útivistar og al- mennrar umræðu og vakningar um umhverf- ismál hafa augu almennings í auknum mæli beinst að þeirri hnignun sem orðið hefur á gróðurfari landsins í „íslands þúsund ár“. Nauðsyn gróðurverndar er ekki ný hugsjón. Einna fyrstur til að vekja athygli manna á hnignun skóga hér á landi var Oddur Einars- son sem rakti helstu orsakir skógareyðingar í Islandslýsingu sinni frá um 1590. Frá þeim tíma hefur mikil jarðvegseyðing átt sér stað víða á landinu. Um hana hefur mikið verið rætt og ritað, bæði um orsakir hennar og einnig hvernig megi græða upp það land sem hefur orðið uppblæstri og jarð- vegseyðingu að bráð. í tilefni ellefu alda byggðar í landinu gaf þjóðin sjálfri sér um- talsverða upphæð sem verja skyldi til gróður- verndar og landgræðslu. Þrátt fyrir það framlag, sem var mun meira en áður hafði verið varið til landgræðslu, nægir það hvergi til að græða sárin og ljóst er að þetta verkefni er risavaxið hvernig sem á það er litið. Skóglendi við landnám Sennilegt er að skógar hafi til forna þakið um eða yfir fjórðung landsins, en nú er áætl- að að joeir vaxi aðeins á hundraðasta hluta þess. Uttekt Skógræktar ríkisins hefur leitt í ljós að rúmlega fjórðungur þessara skóga- leifa er talinn í afturför, tæpur þriðjungur í framför en það sem eftir stendur er staðnað. Ljóst er að við svo búið má ekki lengur standa. Nauðsynlegt er að gera sérgrein fyrir því hvernig skógar endurnýja sig og við hvaða skilyrði birki nemur land við skógar- jaðra. Rannsóknir á birki Á Rannsóknastofnun landbúnaðarins hef- 61

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.