Þjóðlíf - 01.04.1989, Side 63

Þjóðlíf - 01.04.1989, Side 63
V í SI N DI Endurnýjun í gömlum skógi. Birkið endurnýjar sig ekki einungis af fræi, heldur einnig mynd, sem er frá Haukadal á Rangárvöllum. birkifræ spírar yfirleitt ekki nema þar sem eyður eru í gróðri eða þar sem gróður er mjög lágur. Fræplöntur birkisins eru smáar, vaxa hægt og þola illa samkeppni við annan gróður. Jarðvegur verður að vera allstöðug- ur, þ.e. hann má ekki blása frá rótum fræ- plantnanna og ef frosthreyfingar eru miklar vilja birkiræturnar slitna. — Hér á landi eru víða svæði sem gera má ráð fyrir að uppfylli þessi skilyrði. Par má nefna jökulaura og land sem er að gróa upp eftir uppblástur. Eg held að einnig megi ná góðum árangri með sáningu birkis í land sem grætt hefur verið upp með hefðbundnum hætti, þ.e. með sáningu grasfræs og dreifingu áburðar, ef birkinu er sáð í landið á réttum tíma. Gróðurþekjan verður að vera orðin það þétt að verulega hafi dregið úr frost- hreyfingum en birkið verður að ná að vaxa upp úr þeim gróðri sem fyrir er. — Á grónu landi má trúlega koma upp birki með sáningu ef gróðurþekja er rofin með einhverjum hætti, til dæmis með ein- hverskonar jarðvinnslu eða með því að brenna sinu fyrir sáningu. Einnig kemur til greina að nota sauðfé eða stórgripi til að undirbúa jarðveginn. Beitin yrði að vera það mikil að gróður verði snöggur og að opnur myndist í gróðurþekju vegna traðks. Þcgar landið hefur verið beitt í nokkurn tíma yrði sáð í það og það friðað fyrir beit. — Ég vil taka það fram að þessar aðferðir hafa sumar hverjar ekkert verið reyndar hér á landi en mér finnst vel þess virði að gerðar verði tilraunir til að meta hvort mögulegt er að koma upp birki með þessum hætti. Nú er mjög í tísku að taka flag í fóstur. Getur sá sem á slíkt fósturbarn grætt land með því að safna birkifræi og sá í flagið, eða er það of flókið og erfitt fyrir almúgamann? — Ég tel að eiginleg flög séu að öllu jöfnu ekki heppilegir sáningarstaðir fyrir birki. Trúlega eru jaðvegshreyfingar allt of miklar til að smávaxnar birkiplöntur lifi við slíkar aðstæður. Ég held að það þurfi ekki að vera of flókið fyrir fólk að safna birkifræi og sá því. Þegar niðurstöður hafa fengist úr þeim sáningartilraunum sem nú eru í gangi á að vera unnt að leiðbeina fólki um hvernig standa ber að birkisáningum og í hvers konar með rótarskotum eins og sjá má á þessari (Ijósm. Sigurður H. Magnússon) land er best að sá til að ná árangri. Með þessu er ég ekki að segja að fólk þurfi nauðsynlega að bíða eftir þessum niðurstöðum, en gera má ráð fyrir að árangur verði misjafn ef þekkingin er af skornum skammti. Með hvaða hætti getur almenningur lagt birkilandgræðsln frekara lið? — Almenningur hefur nú þegar lagt þessu máli lið. Haustið 1987 óskaði Land- græðsla ríkisins eftir samstarfi við skóla, fé- lagasamtök og einstaklinga um söfnun birki- fræs. Þessi söfnun tókst mjög vel og var end- urtekin haustið 1988. Landgræðslan hefur nú yfir að ráða umtalsverðu fræi. Fræsöfnunin hefur gert henni kleift að hefja tilraunir með húðað birkifræ með það fyrir augum að at- huga áhrif húðunar á spírun og afföll. Eftir því sem ég best veit er ætlunin að halda þessu samstarfi áfram og nýta birkifræið m.a. við kennslu í grunnskólum. Þannig kynnast nemendur landgræðslustarfi í raun, en það tel ég vera mjög æskilegt. Þetta mun væntan- lega auka áhuga barna og unglinga á um- hverfismálum sem síðar mun skila sér í bættri umgengni við landið. — hþ 63

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.