Þjóðlíf - 01.03.1991, Page 35
og nálastungan. í lasergeislanum er
ákveðin orka sem leysist úr læðingi. Þessi
orka flyst inn í kerfið sem það vinnur úr
síðar meir.
„Við vitum í rauninni ekki mikið um
upprunalega orsök verkjanna. Læknirinn
getur ekki vitað hversu lengi þessi verkur
hefur verið að búa um sig í líkama sjúkl-
ingsins. Líffærið getur hrörnað smátt og
smátt áður en einkennin koma fram. Það
tekur ákveðinn tíma að lækna með laser og
nálastungu. Margir sjúklingar streitast við
og vilja trúa á endanlega lækningu með
lyfjum eða uppskurðum.“
„Ef verkurinn hverfur þarf ekki að
stinga sjúklinginn aftur. I raun og veru er
ekki til neitt hámark fyrir því hversu oft
má stinga. Það fer alveg eftir því hvernig
sjúklingurinn svarar. Ef nálastungurnar
hafa ekki borið árangur eftir tvö til þrjú
skipti er gott að breyta um nálar.“
Ihúsnæði sundlaugarinnar er einnig
starfrækt líkamsræktarstöð. Lækna-
vísindin hafa komist að þeirri niðurstöðu
að líkamleg áreynsla skipti mjög miklu
máli til að viðhalda heilsunni. Mataræðið
er einnig gífurlega mikilvægt. Fólk er
stöðugt að verða meðvitaðra um mikilvægi
þess.
„Uppruna nálastungulækninga er að
vissu leyti að finna í indverskri læknis-
fræði sem er sú elsta í heiminum. Sú lækn-
isfræði sem Vesturlandalæknar kenna sig
við er einnig upprunnin í þessari ind-
versku læknisfræði. Grundvallaratriði
hennar eru fjögur. Það fyrsta er hugsun,
við höfum áhrif á líðan okkar með hugsun-
um. í öðru lagi eigum við að geta lifað
góðu lífi af því sem landið býður upp á. I
þriðja lagi eru margar jurtir nothæfar sem
lyf og í fjórða lagi er maturinn mikilvægt
læknislyf samkvæmt indverskri læknis-
fræði.“
„Læknisfræðin eins og hún þekkist á
Vesturlöndum hefur fjarlægst hinn ind-
verska uppruna sinn mjög mikið. Það get-
ur ekki verið rökrétt að uppskurðir þurfi
að vera svo margir eins og raun ber vitni.
Ef skaparinn hefði ætlast til þess hefði
hann sett á okkur rennilás. Manneskjan er
svo fullkomin að þrátt fyrir aukna tækni
hefur vísindamönnum enn ekki tekist að
þróa t.d. eftirlíkingu af axlarlið sem hreyf-
ist eðlilega.“
Hallgrímur telur að Vesturlandalæknar
séu komnir órafjarri markmiði sínu að
lækna sjúkdóma. Fjárstreymið til heil-
brigðiskerflsins aukist stöðugt. Hann álít-
ur að í staðinn fyrir endalausar lyfjagjafir
mætti stuðla að auknu heilbrigði og
hreysti fólksins.
HallgrímurMagnússon læknir. Aukið fé sem heilbrigðiskerfin þarfnast hlýtur óhjákvæmilega að
benda til þess að þjóðirnar verði stöðugt veikari.
„Aukið fé sem heilbrigðiskerfið þarfn-
ast hlýtur óhjákvæmilega að benda til þess
að þjóðirnar verði stöðugt veikari. Enginn
vafi leikur á því að börnin sem nú eru að
vaxa úr grasi eru máttlaus og geta varla
hreyft sig. Þetta er bara angi af vandamáli
sem á eftir að versna þegar þau verða full-
orðin.“
Að sögn Hallgríms hefur slæmt líferni
einstaklingsins í mörgum tilfellum skapað
sjúkdómana sem hrjáir hann. „Ef sjúkl-
ingurinn er allur af vilja gerður til þess að
takast á við og lækna sjúkdóminn er breytt
líferni besta lausnin. Ótal rannsóknir sýna
fram á lækningar sem náðst hafa vegna
breytts mataræðis og aukins heilbrigðis.
Einhvern veginn hafa þær ekki fengið að
blómstra. Upphæðir sem liggja í læknavís-
indum og lyfjum eru svimandi háar. Því
fleiri sem lifa heilbrigðu lífi því minni
verður neysla bæði á matvælum og lyfjum.
Þá yrði mikla minna peningaflæði í þjóðfé-
laginu en það á sjálfsagt síður upp á pall-
borðið.“
aturinn sem við neytum inniheldur
mismikið súrefni. Matur sem inni-
heldur mikið súrefni er hollastur fyrir
líkamann. „Þegar við neytum matar sem
inniheldur lítið súrefni þurfum við að gefa
súrefni frá lungunum til meltingarfær-
anna svo bruni nái að myndast. Ef við
náum ekki að láta af hendi nægilegt súr-
efni fer af stað svokölluð gerjun sem að
vissu leyti er bruni, þó án súrefnis. Við
gerjun myndast ýmis aukaefni í líkaman-
um sem líkaminn þarf að vinna úr.“
Og Hallgrímur lét okkur í té lista um
súrefnisinnihald helstu fæðutegunda.
ÞJÓÐLÍF 35