Frjáls verslun - 01.03.2010, Page 77
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 77
STERKUR OG STÓR
Á næsta ári verður alveg nýr Nissan Patrol kynntur, alvöru fullvaxinn
jeppi sem á að setja ný viðmið og keppa við bíla eins og Toyota Land
Cruiser 200 í gæðum, afli og torfærueiginleikum. Innanrýmið hefur verið
stækk að og gert enn íburðarmeira, mun plássbetra en keppinautarnir.
Nýi Patró l inn er byggður á grind, en nú með mjög slaglangri sjálfstæðri
fjöðrun, og fjór hjóladrifi sem Nissan menn segja að sé það háþróaðasta
á markaðnum. Sjö gíra sjálfskipting, hátt og lágt drif, og nokkrar gerðir af
vélum, sú afl mesta, 5,6 lítra bensín vél, sem er á fimmta
hundrað hestöfl. Góð í drátt.
SÚDANSKUR KAGGI
Fyrir nær fimmtíu árum kom Hillman Hunter á markaðinn
í Bretlandi, fjögurra dyra klassískur fjölskyldubíll. Og fyrir 40
árum, 1970, voru mótin seld til Írans þar sem nafninu var
breytt í Paykan, og bíllinn framleiddur óbreyttur í þrjátíu og
fimm ár. Reyndar voru settar í hann vélar frá Peugeot og
vinsæll var hann, annar hver bíll í klerkalandinu var Paykan.
Þegar framleiðslu var hætt voru mótin seld til Súdan, en
KTC, Khartoum Transportation Company, hóf framleiðslu
á bílnum fyrir fimm árum og gerir enn. Þeir breyttu fram
og afturljósunum, nú er hann semsagt orðinn ...
nútíma legur, eða þannig.
FLOTTASTUR, NÆSTUM ÞVÍ
Á síðasta ári kom ítalski framleiðandinn Lancia með
ofur snotran bíl, með því fornfræga nafni Delta, á mark
aðinn. Lúxusbíl í Golfklassanum. Lancia er eitt af
sjö merkjum Fiat samsteypunnar: Ferrari ofurbíllinn,
Maserati ofurlúxussportbíllinn, Alfa Romeo, fjölsky
ldusportbíllinn og síðan Chrysler sá ameríski stór
framleiðandi sem Fiat samstæðan ætlar að redda
með Jeep, sögufræga jeppaframleiðandanum. Á
þessu ári mun síðan framleiðsla á Lancia Deltunni
hefjast vestanhafs undir merkjum Chrysler. Vélarnar
í þessum lúxussmábíl eru frá 1,4 lítra 120 hestafla
dísel og upp í 220 hestafla bensínrokk.
Bílar