Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 33

Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 33
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 33 S T j ó R N u N Meirihluti stjórnenda hefur breytt áherslum varðandi markaðsmál en rúmlega helmingur segir að dregið hafi verið úr markaðssetningu eins og sjá má á mynd 7. Þó hefur stór hluti þeirra aukið við markaðssetn- ingu. Mikið hefur verið dregið úr útlögðum kostnaði í auglýsingagerð og hafa fyrirtækin ekki verið að breyta áherslum varðandi auglýsta eiginleika (attributes) vöru og þjónustu til dæmis með því að auglýsa frekar eiginleika nauðsynjavöru frekar en lúxusvöru. MARKAÐSSETNING, AuKIN EÐA MINNKuÐ? Mynd 7. Niðurstöður um hvort áherslur hafi breyst varðandi mark- aðssetningu, og þá hvort hún hafi verið aukin eða minnkuð. Þjónusta við viðskiptavini hefur í mörgum tilvikum verið aukin, en meirihluti stjórnenda segir þó að þjónustustig hafi ekki breyst. Lítill hluti stjórnenda hefur dregið úr þjónustu í þeirra fyrirtækjum. Meirihluti stjórnendanna leggur áherslu á að halda í trygga við- skiptavini með því að auka þjónustu við þá. Einnig leggja þeir aukna áherslu á að athuga greiðsluhæfi viðskiptavina. Meðal annarra breyt- inga sem stjórnendur nefna eru að þjónusta hafi að hluta verið færð á heimasíðu fyrirtækjanna. Þegar litið er til mannauðsmála hafa stjórnendur veitt fyrirtækja- menningu aukna athygli og hefur meirihluti þeirra aukið við aðgerðir sem miða að því að byggja upp traust, virðingu og eldmóð starfs- fólks eins og sjá má á mynd 8. Þó hefur dregið úr notkun hvatn- ingakerfa. Þjálfun starfsfólks hefur í flestum tilvikum ekki breyst. uppBYGGING Á TRAuSTI oG ELdMóÐI STARFSFóLKS? Mynd 8. Niðurstöður varðandi áherslubreytingar á aðgerðum sem miða að því að byggja upp traust, virðingu og eldmóð starfsmanna, og þá hvort þeim hafi verið veitt aukin eða minni athygli. SAMANBuRÐuR Á VIÐBRÖGÐuM ÍSLENSKRA oG ERLENdRA FYRIRTæKjA Mynd 9. Viðbrögð íslenskra fyrirtækja við breyttu efnahagsumhverfi borið saman við erlendar starfsaðferðir. Þær niðurstöður sem fengust úr rannsókninni voru bornar saman við viðamikil gögn um þær starfsaðferðir sem hafa gagnast fyrirtækum erlendis í fyrri niðursveiflum. Á mynd 9 er leitast við að sýna á mynd- rænan hátt niðurstöður úr þessum samanburði og rétt er að minnast á að stuðst var við virðiskeðju Michaels Porters. Myndin er þannig uppbyggð að þar sem svið eru græn að lit eru íslensk fyrirtæki að nýta sér sömu starfsaðferðir og erlendis, þar sem svið eru gul að lit nýta íslensk fyrirtæki sér ýmsar aðferðir en þó ekki að fullu og þar sem svið eru rauð að lit gera þau það alls ekki. Af þessari mynd má draga þær ályktanir að íslensk fyrirtæki bregðist við á svipaðan hátt og erlend fræði mæla með á sviði rekstrar og innkaupa og vörustjórnunar. Á sviði mannauðsmála og sviði framleiðslu vöru og þjónustu standa íslensk fyrirtæki sig ágætlega miðað við erlendar starfsaðferðir en þó mætti endurskoða ýmsa hluti. Þegar litið er til sviðs markaðsmála, sölu og þjónustu nýta íslensk fyrirtæki sér ekki þær leiðir sem hafa gengið vel erlendis í fyrri kreppum og þar geta því leynst tækifæri. Á þeim sviðum sem fyrirtækin standa sig vel og fá grænan lit borið saman við erlendar starfsaðferðir eru stjórnendur almennt sammmála um að þær aðgerðir hafi skilað auknu virði. Svör stjórnendanna eru því almennt í samræmi við mat greinarhöfunda um réttmæti aðgerða samanborið við erlendar starfsaðferðir. Í heild hafa íslensk fyrirtæki farið ýmsar réttar leiðir í viðbrögðum sínum, en nokkur svið mætti þó bæta. Eins og minnst var á í inn- gangi geta íslensk fyrirtæki með illu móti haft áhrif á þær efnahags- aðstæður sem skapast hafa síðan í október 2008. Hins vegar gætu þau nýtt tækifærið til endurskoðunar og innleitt breytingar til að auka við velgengni sína samhliða því að lifa niðursveifluna af. Þegar litið er til almennrar starfsemi fyrirtækjanna kemur í ljós að meirihluti rekstrarkostnaðar þeirra er í íslenskum krónum. Stjórn- endur hafa upplifað bæði aukningu á rekstrarkostnaði og að hann hafi dregist saman. Flest fyrirtækjanna svara að rekstrarkostnaður hafi aukist um allt að 20% og því næst að hann hafi dregist saman um allt að 20%. Meirihluti innflutningsfyrirtækjanna, bæði lítil og millistór, eru með tekjur í íslenskum krónum og öll útflutnings- fyrirtækin eru með stærstan hluta tekna sinna í erlendri mynt. Hlut- fall lána fyrirtækjanna í íslenskum krónum er lágt og af því má draga þá ályktun að meirihluti lána fyrirtækjanna sé í erlendum krónum, 20% fyrirtækjanna eru þó skuldlaus.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.