Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 10
Fyrst þetta...
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 11
Steen Lund-Thomsen
Steen Lund-Thomsen er
Dani sem kenndi lengi við
Viðskiptaháskólann í Árósum
og markast starfsferill hans
einkum af framlagi hans til
stjórnunar við skólann. Hann
hefur starfað náið með Háskóla
Íslands. Hann kom mjög
að samningi sem skuldbatt
Viðskiptaháskólann í Árósum til
að gera öllum meistaranemum í
viðskiptafræði í Háskóla Íslands
mögulegt að sækja hluta af
námi sínu í Árósum.
Ingjaldur sagði í ræðu
sinni: „Þetta frumkvæði
Steens Lunds-Thomsens réð
úrslitum þegar viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands
tók ákvörðun um að fara af
stað með meistaranám í við-
skiptafræði árið 1997 og
byggði námið fyrstu árin á
námsskrá Viðskiptaháskólans
í Árósum.“
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt í viðskiptafræði-
deild, flutti annál um sögu viðskiptafræða- og
hagfræðideilda á Íslandi.
Gylfi Zoëga, forseti
hagfræðideildar,
flutti ávarp.
Þórir Einarsson, prófessor í viðskiptadeild í áratugi og síðar
gegndi hann embætti ríkissáttasemjara.
Steen Lund-Thomsen, fyrrverandi forseti
Viðskiptaháskólans í Árósum.
Hörður
Sigurgestsson
tekur við heiðurs-
doktorsnafnbótinni
úr hendi Ingjalds
Hannibalssonar,
forseta viðskipta-
fræðideildar.