Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 78
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 79
Lífsstíll
Æskumyndin er af Lúðvíki
Geirssyni, bæjarstjóra í
Hafnarfirði, og segist hann
trúlega hafa verið fjögurra ára
þegar hún var tekin. „Ég var
alltaf uppi í stiga eða tröppum
að klifra heima á Holtinu; forvit-
inn og áhugasamur að skoða
heiminn. Við vorum þá nýlega
flutt inn í nýtt hús foreldra
minna að Þúfubarði 2, hverfið
var í uppbyggingu og mikið um að vera allt um kring.
allt þetta klifur gekk að mestu áfallalaust fyrir sig en
ég náði því þó að handleggsbrotna í þrígang og man vel
eftir mér í gifsi sem klæjaði mikið undan.“
Æskumyndin
Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem Ísland
(járnblendifélagsins), á Yamaha xT660R
mótorhjól. Þegar hann er spurður hvað
heilli hann við mótorfákinn segir hann:
„Þessi tilfinning fyrir frelsi, einfaldleikinn,
útiveran og maður er einn með sjálfum
sér.“
Einar hefur víða farið á hjólinu, hvort
sem það er snjókoma, rigning, sand-
stormur eða 48 stiga hiti. Fyrir utan það
að hjóla hér innanlands hefur hann farið
hringinn í kringum hnöttinn á hjólinu sínu.
„Ég hjólaði austur á land, sigldi
með Norrænu til Noregs, fór um
Eystrasaltslöndin, til Rússlands og
Mongólíu, ég hjólaði um Góbíeyðimörkina,
fór aftur til Rússlands, þaðan til Japan,
alaska, Kanada og síðan fór ég þvert
yfir Bandaríkin og til New York en þaðan
flaug ég heim.“
Einar segir að þetta ferðalag hafi
kennt sér hvað Íslendingar hafi það
gott þrátt fyrir kreppuna. „Ég lærði líka
hvað mannfólkið er yfirleitt gott og hvað
lífsgleðin getur verið mikil þrátt fyrir erf-
iðleika.“
Einar segir að ferðalagið um Mongólíu
sé eftirminnilegast. „Þar var víða ekki
stingandi strá, hirðingjar búa þar í
tjöldum og lifa af náttúrunni og þar
lentum við bæði í 47 stiga hita og frosti.“
draumur Einars er að ferðast um
afríku á mótorhjólinu.
mótorhjól:
Umhverfis jörðina á 95 dögUm Einar Þorsteinsson. „Þessi tilfinning fyrir frelsi, einfaldleikinn, úti-veran og maður er einn með sjálfum sér.“