Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 45
46 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 H ildur Inga Björnsdóttir hönnuður er eigandi fyrirtæk- isins Xirena sem hannar skartgripi og skartfatnað fyrir skapandi konur. Hildur lauk mastersnámi í tískuhönnun frá Domus Academy í Mílanó og hefur auk þess lagt stund á myndlist í hinum virta listahá- skóla Accademia di Belle Arti di Brera í Mílanó og grafíska hönnun hér heima. Frá því nú í haust hefur Hildur staðið fyrir námskeiðum í fatastíl ásamt persónulegri ráðgjöf. Hvers konar námskeið býður þú upp á? „Ég er með tvenns konar námskeið í fatastíl: Hvaða týpa ert þú? sem er sex daga námskeið fyrir einstaklinga, og Betri klæðnaður til frekari árangurs! sem eru styttri námskeið ætluð hópum og starfsmanna- félögum fyrirtækja. Sex daga námskeiðið er haldið í Gerðubergi og þar tek ég fyrir öll helstu atriði varðandi tísku og klæðaburð. Ég legg ríka áherslu á að þátttakendur finni sinn persónulega stíl og þeir taka jafnframt virkan þátt í námskeiðinu með því að útbúa persónulega vinnubók þar sem stíll hvers og eins er undirstrikaður. Hitt námskeiðið er meira í fyrirlestrarformi og tekur um 1–2 klsukkustundir. Á því fer ég yfir hvernig við getum notað fatnað til að ná árangri í því sem við sækjumst eftir og hvaða skilaboð við sendum með klæðaburði okkar. Við getum haft miklu meiri áhrif á umhverfi okkar með klæðnaði okkar en við gerum okkur grein fyrir og námskeiðið opnar fyrir þá möguleika. Námskeiðið hentar vel fyrir bæði kynin og allan aldur þar sem námskeiðið er lagað að þörfum hvers hóps fyrir sig. Þar sem margir hafa leitað til mín eftir persónulegri ráðgjöf býð ég einnig upp á einstaklingsráðgjöf fyrir þá sem það kjósa. Þá fer ég m.a. yfir það hvernig fólk skapar sér sérstöðu með klæðaburðinum og hvaða litir og snið henta því best með tilliti til líkamsvaxtar. Persónuleg mappa með öllum helstu upplýsingum fylgir ráðgjöfinni. að þora að vera maður sjálfur Á námskeiðunum legg ég mikla áherslu á að fólk klæðist fatnaði sem því líður vel í og endurspeglar það sjálft. Til þess þarf fólk að taka sig í nokkurs konar sjálfsskoðun, þ.e. sættast við hvernig maður er í raun og veru og þora að vera maður sjálfur. Hér á landi, þar sem allir klæða sig meira eða minna í svart, er t.d. lítið hugað að því hvað litir geta haft mikla þýðingu. Þrátt fyrir að svart geti hentað í sumum tilvikum klæðir sá litur fáa einn og sér og getur virkað niðurdrepandi fyrir fólk til lengdar. Margir eru mjög óöryggir varðandi litanotkun og hvaða litir klæði þá best og þá getur litgreining hjálpað mikið til að koma þeim á sporið. Öll endurspeglum við ákveðna liti og með því að draga þá fram með réttu litavali getum við t.d. yngst um mörg ár. Ég legg þó mikla áherslu á að fólk bindi sig ekki of mikið við litakortið til lengdar og sé óhrætt að blanda saman litum og litatónum. Að mínu mati er allt of mikil hræðsla við liti hér á landi en allir eru reiðubúnir til að segja þér hvað er óklæðilegt og hvað passar ekki saman. Margir sem hafa komið til mín í ráðgjöf kvarta yfir því hve erfitt sé að fá fatnað í litum hér heima þar sem allar verslanir séu yfirfullar af svörtum fatnaði. Við þurfum að stíga út úr þessu mynstri og ég vil trúa því að kreppan hafi þau áhrif að við hættum að taka okkur jafnalvarlega eins og við höfum gert hingað til og förum að klæðast litríkari fatnaði.“ Hvers konar klæðnaðar er krafist í viðskiptaheiminum? „Víða í viðskiptalífinu, sérstaklega í fjármálageiranum, er oft krafist klassísks fatastíls („dress code“) sem einkennist af hlutlausum litum og vönduðum merkjum: Jakkaföt, skyrta og bindi fyrir karlmenn TExTi: hrund hauksdóttir • MynDiR: geir ólafsson Fatnaður til frekari árangurs Það eru gömul sannindi og ný að við mótum strax skoðun okkar á fólki við fyrstu kynni. Það gerist í raun á nokkrum sekúndum. Það gefur því augaleið að mikil- vægt er að koma vel fyrir t.d. í atvinnuviðtölum. Hvernig við klæðum okkur og komum fyrir í vinnunni getur verið eitt af lykilatriðum velgengninnar á framabrautinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.