Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 82
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 83
Mamma Mia
– Engin framhaldsmynd
Mamma Mia ásamt Batman Returns eru
gullkálfarnir á þessu ári og eru yfirburða
peningamaskínur. Hvað varðar Batman
þá er þegar farið að undirbúa næstu
kvikmynd. En ekkert slíkt er í gangi hvað
varðar Mamma Mia. Hjá Universal reyta
menn hár sitt í örvæntingu og vilja fram-
hald, en Judy Craymer, sem á réttinn á
söngleiknum, segir nei og ekki er hægt
að freista hennar með peningum. Talið er
að frá því söngleikurinn var settur á svið
og kvikmyndin fór að hala inn peninga
hafi Craymer grætt 90 milljónir punda
og vinkonur hennar tvær, leikstjórinn
Phyllida Lloyd og rithöfundurinn Catherine
Johnson, sem hafa verið með frá upphafi,
eru sagðar 25 milljón pundum ríkari hvor
um sig. Craymer segir að saga framhald-
smynda sé ekki glæsileg þegar gæði
eru höfð í huga og framhaldsmynd sem
eingöngu er gerð peninganna vegna finnst
henni óspennandi kostur.
Reese Witherspoon og Vince Vaughan
taka upp pakka á jólunum.
Fern jól
Þær jólamyndir sem standa undir nafni
og fjalla um jólin eru aldrei frumsýndar á
jólunum. Það þykir ekki vænlegt. Heldur
eru þær frumsýndar í nóvemberlok.
Sú jólamynd sem þykir mestur fengur
í að þessu sinni er Four Christmases
sem státar af hæstlaunuðu kvikmynda-
leikkonunni um þessar mundir, Reese
Witherspoon, í aðalhlutverki ásamt Vince
Vaughn. Í myndinni leika þau
óhamingju-
söm hjón sem þurfa að fara í fjögur jóla-
boð þar sem foreldrar beggja hafa skilið
og hafið sambúð á ný. Þessar heimsóknir
verða til þess að þau líta í eigin barm og
taka til endurskoðunar gildi lífsins. Fjöldi
þekktra leikara koma fram í hlutverkum
foreldra og stjúpforeldra, má þar nefna
Mary Steenburgen, Sissy Spacek, Dwight
Yokam, Jon Favereau, Robert Duvall og
Jon Voight.
Kate Winslet leikur dularfulla þýska konu,
Hönnu Schmidt í Lesaranum.
Lesarinn
Breski leikstjórinn Stephen Daldry hefur
leikstýrt tveimur frábærum kvikmyndum
Billy Elliot (2000) og The Hours (2002).
Nú er loks að vænta þriðju kvikmyndar
hans, The Reader, eða Lesarinn, sem
gerð er eftir samnefndri skáldsögu
þýska rithöfundarins Bernhards Schlink
sem þýdd hefur verið á 39 tungumál,
m.a. íslensku. Myndin gerist að síðari
heimsstyrjöldinni lokinni og segir frá
manni sem hefur mótast af ástarævintýri
sem hann átti með eldri konu þegar hann
var unglingur. Tíu árum síðar hittir hann
konuna aftur þegar hún er ákærð fyrir
stríðsglæpi og er að verja sjálfa sig. Með
aðalhlutverkin fara Kate Winslet og Ralph
Fiennes. Kate Winslet var strax fyrsti
kostur Daldrys, en hún hafði lofað sér í
Revolutionary Road á sama tíma. Þá var
Nicole Kidman boðið hlutverkið, sem hún
þáði, en varð að hætta við er hún varð
ófrísk. Kom þá aftur að Kötu sem var á
lausu vegna breyttra tökudaga.
Þegar tökur hófust gekk allt frekar hægt fyrir
sig vegna flókinna eftirlíkinga af sögulegum
byggingum og stöðum sem þurfti að sviðsetja til
að allt yrði sem eðlilegast. Þá töfðust tökur þegar
ellefu manns slösuðust er bíll sem notaður var
við tökurnar valt. Fleiri óhöpp urðu og eitt það
afdrifaríkasta var að filma með atriði sem tekið
var upp í Bendlerblock eyðilagðist og þurfti að
fá leyfi aftur til að kvikmynda þar. Öll þessi
runa óhappa varð til þess að hvað eftir annað
var frestað frumsýningu sem átti að vera í vor.
Að lokum var ákveðið að frumsýna myndina
í febrúar 2009, en nú hefur frumsýningardag-
urinn verður færður til 26. desember 2008 þar
sem prufusýningar hafa gengið mjög vel.
Aðalleikari og framleiðandi
Yfirleitt boðar það ekki gott þegar hvað eftir
annað er frestað frumsýningu stórmyndar. Óvíst
er að svo sé með Valkyrie sem leikstýrt er
af Bryan Singer, sem þekkir lítið annað en
velgengni í bransanum. Hann á að baki hina
frábæru The Usual Suspects, sem gerði hann
frægan á svipstundu, og hefur síðan leikstýrt
fyrstu tveimur X-Men myndunum og Superman
Returns, sem allar fengu mikla aðsókn. Singer er
mikill fagmaður og hefur sýnt að hann ræður
við öll verkefni sem hann fengist við og Valkyrie
er þar engin undantekning. Ekki er verra að
hafa í liðinu handritshöfundinn Christopher
McQuarrie, sem skrifaði handritið að The Usual
Suspects.
Sem fyrr segir er Tom Cruise í hlutverki
Stauffenbergs. Hann er einn aðalframleiðandi
myndarinnar og þótt menn hefðu kosið að
skipta um leikara þegar mótmælin gegn Cruise
í hlutverkinu voru sem háværust hefði það ekki
verið hægt. Hversu vel honum tekst upp á eftir
að koma í ljós en það verður ekki af honum
tekið að hann líkist Stauffenberg í útliti. Þekktir
breskir leikarar eru í flestum öðrum hlutverkum,
má þar nefna Kenneth Brannagh, Bill Nighy,
Tom Wikinson, Eddie Izzard og Terence Stamp.
Auk þess fer hinn ágæti þýski leikari Thomas
Kretschmann með hlutverk í myndinni.
Valkyrie verður sem sagt frumsýnd á annan
dag jóla, 26. desember, í Bandaríkjunum. Ekki
er komin dagsetning á myndina hér á landi,
en hún verður tekin til sýninga í mörgum Evr-
ópulöndum síðari hluta janúarmánaðar og þá að
öllum líkindum einnig hér um sama leyti.
KVIKMYNDAFRÉTTIR