Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 75
76 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
K
YN
N
IN
G
Fyrirtækið Mjólka ehf. var stofnað í febrúar árið 2005 af fjölskyldunni að Eyjum II í Kjós og aðilum henni
tengdum. Sérhæfing Mjólku felst í framleiðslu
á ostum og öðrum mjólkurafurðum fyrir inn-
anlandsmarkað en Mjólka er eina fyrirtækið
í íslenskum mjólkuriðnaði sem starfar alfarið
utan hins hefðbundna greiðslumarkskerfis
landbúnaðarins. Snemma á þessu ári festi
Mjólka kaup á fyrirtækinu Vogabæ í Hafn-
arfirði og er framleiðsla fyrirtækjanna nú undir
einu þaki og lýtur einni yfirstjórn. Mikill
vöxtur er í starfsemi beggja fyrirtækjanna, en
framkvæmdastjóri er Ólafur M. Magnússon.
Neytenda- og stóreldhúsmarkaður
„Markaður félaganna er tvíþættur, neytenda-
markaður og stóreldhúsamarkaður. Vöruflokk-
arnir fyrir stóreldhúsin eru fleiri hjá Mjólku en
fram til þessa hefur þó neytendamarkaðurinn
verið okkar aðaláhersla. Á allra síðustu vikum
hefur hlutur okkar á stóreldhúsmarkaði vaxið
töluvert og á dögunum var aukið verulega
við framleiðslugetu Mjólku með aukningu
á vörum sem fyrir voru og með því að bæta
nýjum vörum við. Unnið er að stöðugri þróun
á sviði nýjunga og umbótum á þeim vörum
sem þegar eru á markaði. Þar af leiðandi mun
vöruflokkunum fjölga smám saman,“ segir
Ólafur M. Magnússon.
Vafalítið skilar sér sú umræða sem farið
hefur fram hér á landi til Mjólku, þ.e. að
neytendur velji vörur frá innlendum framleið-
endum, en söluaukning nú að undanförnu er
einnig í takt við þá þróun sem hefur verið
allt frá stofnun Mjólku. „Við sjáum jafna og
þétta aukningu og teljum að hluti af skýring-
unni sé einfaldlega sá að neytendum þykja
vörur Mjólku góðar. Án vafa eru neytendur
okkur hliðhollir líka. Að auki finnum við
greinilega að neytendur fylgjast grannt með
efnainnihaldi í vörunum. Sýrði rjóminn frá
Mjólku er án allra aukaefna og eru neytendur
ósparir á að lýsa yfir ánægju sinni við okkur
með þá vöru. Það skiptir miklu að hafa í
huga og fylgja eftir heilsuvitund þjóðarinnar
og Mjólka mun hafa heilsu og hollustu í fyrir-
rúmi framvegis sem hingað til.“
Aukin hagkvæmni með kaupum á Vogabæ
Í febrúar sl. keypti Mjólka rekstur Vogabæjar
en það fyrirtæki hefur um árabil framleitt
ídýfur og sósur í neytendaumbúðum. Í maí
var framleiðsla Mjólku og Vogabæjar sam-
einuð undir einu þaki og einni yfirstjórn í
Hafnarfirði.
Starfsemi fyrirtækjanna fellur vel saman.
Notað er sama dreifingarkerfið í verslanir
og stóreldhús, auk þess sem Vogabær getur
nýtt sér hluta af framleiðslu Mjólku í sínar
vörur.
Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku. Það er mjög líflegt
hjá Mjólku þessa dagana og mikið að gera. Mikið er um að vera enda er
Mjólka ungt og vaxandi fyrirtæki í landvinningum á markaðnum.
Mjólka og Vogabær
eiga það sameiginlegt
að framleiða góðar og
eftirsóttar vörur og
þau vaxa með auknum
markaði ár frá ári.
í stöðuGum vextI
www.mjolka.is
Mjólka og Vogabær
Nokkrar af hinum
vinsælu framleiðslu-
vörum Mjólku.
C M Y CM MY CY CMY K