Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 83
84 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
Gott dæmi er vodka mart-
ini drykkur James Bonds sem
pantar hann ævinlega með orð-
unum: Shaken not stirred. Fleiri
víntegundir koma við sögu í
kvikmyndum og dægurlagatextum
eins og t.d. Chivas Regal viskí
sem var uppáhaldsdrykkur Frank
Sinatra. m eins og t.d. Chivas
Regal viskí sem var uppáhalds-
drykkur Frank Sinatra.
Bræðurnir James og John
Chivas stofnuðu Chivas Regal
brugghúsið í heimabæ sínum í
Skotlandi á fyrri hluta nítjándu
aldar. Þeir höfðu rekið verslun í
Aberdeen og seldu þar framandi
kryddtegundir, kaffi og lúxusmat-
vörur og margar aðrar spennandi
nauðsynjar. Þar kom að þeir fóru
einnig að brugga og trúðu því að
krafturinn sem býr í vískíi gæti gert
þeim kleift að búa til viskíblöndur
sem væru í hæsta gæðaflokki.
Þeir voru líka mjög forsjálir og fjár-
festu í lager af eldri viskíum frá
öðrum framleiðendum til að nota
í sínar eigin blöndur. Á síðari hluta
19. aldar komust þeir á spjöld
sögunnar þegar þeir bjuggu til sína
frægustu blöndu sem hlaut nafnið
Chivas Regal. Bræðurnir voru
sannir frumkvöðlar og enn er þessi
blanda talin með því besta sem
gerist í heiminum. Hinum einstaka
stíl og hefðum sem Chivas-bræður
tileinkuðu sér fyrir 200 árum er
viðhaldið enn þann dag í dag af
starfsmönnum fyrirtækisins.
Frank Sinatra og Chivas Regal
Upp úr 1950 komst Chivas Regal
í fréttir sem einn af uppáhalds-
drykkjum söngvarans Franks
Sinatra og félaga hans í The Rat
Pack; Dean Martin, Sammy Davis
Jr., Peter Lawford og Joey Bishop.
Sagt er að Sinatra hafi ævinlega
viljað hafa nóg af Chivas Regal
baksviðs þegar hann kom fram
opinberlega. Chivas var auk þess
styrktaraðili Diamond Jubilee Tour
Frank Sinatra árið 1990.
En Chivas
Regal kemur
víða við í
söngtextum
stjarnanna.
Sem dæmi
má nefna að
Kelly Clarkson,
sem sigraði í
American Idol
árið 2002,
syngur um
viskíið í laginu
Chivas sem er
á albúminu My
December.
Sigurður Bjarkason er mikill vínsérfræð-
ingur auk þess sem hann er lærður þjónn.
Hann segir okkur að Chivas 12 ára
sé hunangsgyllt með brúnum tóni.
Það ilmar af hnetum og ávöxtum.
Bragðið er kröftugt, epli, hunang
og með töluvert reykt eftirbragð.
Chivas Regal 18 ára og ljósbrún-
gyllt á litinn og ilmar af púður-
sykri með ávaxtatóni auk þess
sem af því er keimur af eplum
og perum. Umbúðirnar utan
um Chivas Regal eru flottar
og býsna jólalegar svo
gaman er að gefa jafnt
sem þiggja þetta göfuga
viskí. Chivas Regal er selt
í verslunum ÁTVR og í
Fríhöfninni og er ein mest
selda viskíblanda heims.
Það er sannarlega skemmtilegt að hugleiða
hvernig ýmiss konar vörumerki verða þekkt
í gegnum kvikmyndir og dægurlagatexta.
Stjörnurnar
og Chivas Regal
Sigurður Bjarkason.
Dean Martin
og Frank Sinatra.
Lífsstíll