Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 87
88 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
Gunnar Ingi
Sigurðsson: „Allt frá
byrjun hef ég einsett
mér að heimsækja
allar verslanir viku-
lega, enda er það eina
leiðin fyrir mig til að
komast í návígi við
starfsfólkið og heyra
milliliðalaust hvað því
liggur á hjarta.“
hagkaup hefur í gegnum tíðina verið leiðandi á íslenskum smásölumark-aði og býður mesta úrval á Íslandi í
matvöru og sérvöru. Hjá fyrirtækinu starfa
um 850 manns í tíu verslunum á höfuðborg-
arsvæðinu, Reykjanesbæ, Borgarnesi og Akur-
eyri. Framkvæmdastjóri er Gunnar Ingi Sig-
urðsson: „Það er í mörg horn að líta þegar
vöruúrvalið er mikið. Vörurnar koma alls
staðar að; frá nágrannalöndum okkar, sem og
fjarlægum löndum eins og Indlandi, Kína og
Tyrklandi. Innlendar vörur eru þó ávallt í fyr-
irrúmi þegar því verður við komið. Við fram-
leiðum talsvert af fatnaði sjálf sem hannaður
er sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Eitt af
því sem við höfum verið sérlega hreykin af er
Ítalíu vörumerkið okkar, en við kaupum þær
vörur beint frá einvalaliði bænda í hinu sól-
ríka Toscana-héraði. Þessar vörur hafa fengið
frábærar viðtökur, enda eru gæðin eins og þau
gerast best.
Undirbúningur fyrir jólin er krefjandi tími
enda er desember almennt sá annríkasti hjá
verslunarfólki. Við byrjum að undirbúa jólin
í október með innkaupum og skipulagningu.
Við náðum að kaupa mikið af vörum á hag-
stæðara gengi og getum því boðið lægra verð
en ella sem vonandi kemur mörgum til góða.
Það er einna helst í grænmeti og ferskum
matvörum sem erfitt er að halda í verðið þó
svo það megi finna fjölda ódýrra vöruliða í
úrvali sem telur 13 þúsund vöruliði. Ein nýj-
ungin í jólamánuðinum er sú að hafa versl-
unina í Skeifunni opna allan sólarhringinn.
Er Hagkaup þar með fyrsti stórmarkaðurinn
hérlendis sem býður slíka þjónustu og um
leið sköpum við vinnu fyrir tíu manns sem er
mjög jákvætt á þessum tímum.“
Gunnar Ingi hefur starfað í tíu ár hjá
Hagkaup, í fyrstu sem rekstrarstjóri en sem
framkvæmdastjóri undanfarin þrjú ár. „Ég hef
alltaf starfað í verslun með einum eða öðrum
hætti, enda hef ég mjög gaman af því að vinna
með fólki. Allt frá byrjun hef ég einsett mér
að heimsækja allar verslanir vikulega, enda er
það eina leiðin fyrir mig til að komast í návígi
við starfsfólkið og heyra milliliðalaust hvað
því liggur á hjarta. Þessi siður hefur reynst
mér ómetanlegur, enda finn ég best í þessum
heimsóknum hvernig hjartað í fyrirtækinu
slær hverju sinni.“
Eiginkona Gunnars Inga er Ásta Birna
Stefánsdóttir. Þau eiga fjögur börn á aldrinum
þriggja til tuttugu og eins árs. Gunnar Ingi
segir að áhugamál sín tengist að mestu fjöl-
skyldunni: „Það er mikill erill í mínu starfi og
vinnutíminn langur. Verslanirnar eru opnar
alla daga og má segja að maður sé á vakt þegar
opið er. Þar fyrir utan er verðmætast í mínum
huga að eiga tíma með fjölskyldunni.
Við erum búin að koma okkur upp sumar-
bústað við Meðalfellsvatn og þangað er farið
þegar tími vinnst til enda stutt að fara á bak
við Esjuna. Þar er gott að vera, komast út
úr daglega amstrinu og skipta alveg um gír.
Sumarbústaðurinn gerir mikið fyrir okkur,
við höfum ekki þörf fyrir að fara neitt annað
og áttum góðar stundir þar síðastliðið sumar í
frábæru veðri. Alltaf er hægt að dunda sér við
eitthvað og maður bregður stöku sinnum á
loft hamri og pensli þótt þumalputtarnir séu
margir.““
framkvæmdastjóri Hagkaups
gunnAR ingi siguRðsson
Nafn: Gunnar Ingi Sigurðsson.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
12. september 1967.
Foreldrar: Halldóra Ingjaldsdóttir
og Sigurður Arinbjarnarson.
Maki: Ásta Birna Stefánsdóttir.
Börn: Elísabet, 21 árs, Fríða
Karín, 14 ára, Tómas Ingi, 11
ára, Agnar Bragi, 3ja ára
Menntun: Viðskiptafræðingur
frá Háskólanum á Bifröst.