Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 11

Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 11
Fyrst þetta... 12 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 Þórbergssetur, Hala í Suðursveit, hlaut nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, árið 2008. Þetta var í fimmta sinn sem verðlaunin voru veitt og fékk Þórbergssetur verðlaunin fyrir öfluga uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. Sjá vefsvæðið www.thorbergur.is. Í áliti dóm- nefndar sagði: „Þórbergssetur er einstaklega vandað framtak fólks úr héraði við uppbygginu menning- artengdrar ferðaþjónustu. Setrið er ekki aðeins safn tileinkað einum af merkari rithöfundum þjóðarinnar. Það er einnig lifandi sögusýning á atvinnuháttum og menningu Suðursveitunga gegnum aldirnar og hvernig þeir hafa hagað sinni búsetu í nábýli við óblíða náttúru.“ Tíu vikna leiðtoganámskeiði fyrir konur lauk nýlega hjá Samskipum. Námskeiðið er til að bæta hæfni í mann- legum samskiptum og efla sjálfstraust og tengslanet. Virkjum auð kvenna hjá Samskipum var yfirskrift námskeiðsins og luku 20 konur námskeiðinu. „Við fengum að spreyta okkur á raunverulegum verkefnum sem reyndu á og nú er í gangi mikill metnaður til að tryggja að afraksturinn verði góður,“ segir Ólöf Ólafsdóttir, launa- fulltrúi og einn þátttakenda. Kennari á námskeið- inu var Lára Óskarsdóttir frá Dale Carnegie og naut hún aðstoðar Heiðrúnar Arnsteinsdóttur og Jóhönnu Lindar Jónsdóttur hjá Samskipum. Tíu vikna leiðtoganámskeiði fyrir konur lauk nýlega hjá Samskipum. samskip virkja auð kvenna Nýsköpunarverðlaun SAF: Þórbergssetur fékk verðlaunin Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, afhendir þeim Fjölni Torfasyni og Þorbjörg Arnórsdóttur, eigendum Þórbergsseturs, nýsköpunarverðlaun samtakanna.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.