Frjáls verslun - 01.10.2008, Blaðsíða 15
16 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
Forsíðu grein Skattborgarinn
Hver er hann?
Hann er hinn nýi milljarðamæringur Íslendinga, hann er skattborg-
arinn. Hann er okkar maður í þessari grein og við ætlum að skoða
hvernig málin horfa við honum.
Hann er á miðjum aldri, aldrinum 30 til 40 ára, ágætlega mennt-
aður, með fjölskyldu og hann er skuldum vafinn eftir að hafa keypt
sér íbúð fyrir nokkrum árum þegar útlána- og eignabólan var í hæstu
hæðum og verð á íbúðum var hátt.
Hann er af kynslóðinni sem hefur hvorki þekkt verðbólgu né
atvinnuleysi. Eina verðbólgan sem hann hefur heyrt um var verð-
bólgan á fasteignum og hlutabréfum. Honum leist í sjálfu sér ekki
mjög illa á hana – sá meira að segja íbúðina sína hækka í verði um
tíma og gat reiknað út aukið eigið fé í íbúðinni.
Núna syngur hann lagið: Ég lifði í draumi. Hann veit samt að
hann má ekki missa eldmóðinn, ekki missa trúna, ekki missa niður
drauminn. Hann verður að lifa í draumi.
Honum er sagt að gömlu gildin séu komin aftur í hagfræðinni. Að
það sé ekki hægt að taka góðæri að láni heldur verði að vera innstæða
fyrir nýju góðæri, hvenær sem það birtist. Þetta er svolítið erfitt fyrir
hann, hann er af excel-kynslóðinni og vanur að reikna og reikna;
yfirleitt sér í hag.
Hann er skattborgari og líður í sjálfu sér vel með það; það
merkir að hann hafi vinnu og geti borgað skatta. Hann er samt ekki
alveg búinn að melta það að hann er hinn nýi milljarðamæringur
Íslendinga; á hann er NÚNA treyst.
Hann dregur vagninn
Okkar maður, skattborgarinn, skynjar ekki að hann sé hinn nýi millj-
arðamæringur þótt stjórnvöld komi þannig fram við hann og séu
jafnvel til í að skála við hann. Honum er ætlað að draga vagninn á
næstu árum. Hann er maðurinn á bak við ríkissjóð.
Þegar ríkissjóður tekur á sig auknar byrðar þá kemur til kasta hans.
Hann var að vísu lækkaður í launum um 15% nýlega svo „kæri rík-
issjóður; þú færð því miður minna núna“.
Hann hefur líka lækkað í launum óbeint. Það heitir víst á tækni-
máli að kaupmáttur hans hefur rýrnað vegna verðbólgunnar. Verð á
vöru og þjónustu hækkar og er hleypt út í verðlagið án þess að laun
hans hækki – þau eru ekki verðtryggð; það eru bara skuldirnar hans.
Hagfræðingar nefna þetta að raunlaun hans hafi lækkað. Hann
kannast vel við þetta orðalag úr blöðunum. Lækkun raunlauna hefur
verið notuð sem rök með því að hafa krónu sem gjaldmiðil og nota
hana sem stjórntæki til að jafna út hagsveiflur. Formúlan er þessi:
HINN NÝI MILLJARÐAMæRINGUR
HANN ER
SKATTBoRGARINN
Ráðamenn þjóðarinnar virðast í miðri
kreppunni hafa fundið nýja auðlind.
TExTI: jón G. Hauksson
MYNDIR: Geir ólaFsson
TEIKNING: lilja Gunnarsdóttir