Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Síða 29

Frjáls verslun - 01.10.2008, Síða 29
30 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 Forsíðu grein Skattborgarinn sænskur banki, Fokus bank er danskur, svo dæmi séu nefnd, og íslensku bankarnir þrír voru búnir að ná fótfestu í landinu. Þetta bendir til að norsku bankarnir séu afar varkárir. Af hverju nota þeir ekki frelsið? „Að mínu viti liggur munurinn í sögunni. Ramminn er sá sami en sagan er önnur,“ segir Henriksen og vísar í að bankakreppan norska á árunum 1988 til 1993 sitji enn í mönnum. „Þetta var gríðarlegt áfall fyrir kaup- hallarviðskipti og allan rekstur fjár- málastofnana,“ segir Henriksen. „Ríkið þjóðnýtti bankana – afskrifaði allt hlutafé þeirra – þegar leit út fyrir að þeir féllu eftir mikinn vöxt í útlánum. Allir sem áttu hlutafé í bönkum misstu eign sína og þegar þetta hefur gerst einu sinni vita allir að það getur gerst aftur.“ Henriksen segir að bankamenn í Nor- egi fari enn varlega vegna þess að þeir óttist að ríkið grípi aftur inn í og geri hlutaféð að engu. Það má ef staða bank- anna þykir ótrygg. Og hann bendir á að norsku bankarnir voru ekki gjaldþrota þegar þeir voru þjóðnýttir; ríkisstjórnin óttaðist bara að þeir færu í þrot og að Seðlabankinn yrði að koma til hjálpar sem lánveitandi til þrautavara. fjárfestar í sókn keyptu „Á Íslandi virðist sem bankarnir hafi farið að vaxa óeðlilega mikið strax eftir að þeir voru einkavæddir árin 2002 og 2003,“ segir Hen- riksen. „Það má spyrja hvort ein undirrót vandans liggi ekki þar. Var rétt staðið að einkavæðingunni?“ Henriksen hefur efasemdir um einkavæðinguna. Í fyrsta lagi hafi bankarnir verið seldir á of lágu verði. Í öðru lagi lentu þeir í höndum heimamanna en ekki alþjóðlegu bankaumhverfi. Og nýir eigendur voru fjárfestar í sókn en ekki gætnir bankamenn með reynslu af rekstri banka. „Það hefði styrkt íslenska banakerfið mikið ef í það minnsta einn af þremur bönkum hefði verið í eigu stærri erlends banka. Það hefði veitt eigendum hinna bankanna aðhald,“ segir Henriksen. Hann segir að alltaf gerist það sama þegar reglur um starfsemi fjár- málastofnana eru rýmkaðar, bankar lenda í höndum áræðinna fjárfesta og nóg er af ódýru lánsfé. Bankarnir þenjast út og virð- ast úttroðnir af fé þangað til þeir að lokum hrynja saman. Búið að gerast í noregi Þetta gerðist í Noregi fyrir um 20 árum, einkum með því að tekin voru erlend lán til að fjármagna húsnæðiskaup almenn- ings. Fasteignaverð varð mun hærra en raunverulegt verðmæti eignanna. Á Íslandi gerðist það sama á húsnæðismarkaði og við bættust miklar og oft vafasamar fjárfestingar í útlöndum. Íslenskir fjárfestar keyptu fyrir- tæki sem aðrir vildu ekki. „Hér í Noregi vita bankamenn af reynslu að Fjármálaeftirlitið getur komið einn dag og sent bankastjórnina heim ef bankinn tekur of mikla áhættu,“ segir Henriksen. „Á Íslandi höfðu menn aldrei upplifað hættuna sem fylgdi frelsinu og gættu sín ekki. Þeir bara gáfu í botn og keyrðu þar til allt endaði með ósköpum. En bæði í Noregi og á Íslandi hafa menn sömu umferðarreglurnar.“ Áhætta á kostnað ríkisins Henriksen telur og að það sé hlutverk stjórnvalda að koma í veg fyrir að bankarnir valdi óhöppum. „Einstaklingar eiga að taka áhættu en ríkið má það ekki því ríkið hefur öðrum skyldum að gegna en einkafyrirtæki. Þarna verður að „norskir bankamenn eru enn hræddir eftir síðustu bankakreppu.“ „ees-samningurinn bannar ekki stjórnvöldum að grípa inn í og stöðva vöxtinn.“ „Þetta gat litið út sem traustir peningar á pappírunum en voru engir peningar.“ eignir bankanna sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu Ísland Noregur Heimild: dagens Næringsliv, Þorvaldur gylfason, Seðlabanki Íslands, Norges bank
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.