Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 36

Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 36
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 37 Dr. Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni hf., er sérlega yfirvegaður, brosmildur og kemur vel fyrir. ORF er fyrirtæki á sviði erfðatækni og á því rætur í háskóla-samfélaginu. Það framleiðir sérvirk prótein í byggi með aðstoð erfðatækni í tvöþúsund fermetra gróðurhúsi við Grindavík; hús sem fer ekki framhjá neinum. ORF er í miklum vexti og reiknað er með að á næsta ári verði fyrirtækið farið að selja framleiðslu sína um alla heim. En hver er þessi Björn Örvar, sem hefur verið talsvert í fjölmiðlum að undanförnu, og er í forsvari fyrir þetta spennandi fyrirtæki? Hann er Kópavogsbúi í húð og hár. Ólst upp í Hvömmunum í Kópavogi, en fæddist raunar í Hafnarfirði, á fæðingardeildinni í Hafnarfirði, 30. ágúst 1959. Foreldrar hans eru Björn K. Örvar úrsmiður, sem er nýlátinn, og Hanna Marta Vigfúsdóttir skrif- stofumaður. Hann er yngstur þriggja systkina, Björg Örvar myndlist- arkona er elst, en næstur í röðinni er Kjartan B. Örvar læknir. „Ég ólst upp í Lindarhvammi sem er í austurbænum í Kópavogi og var á þeim tíma nýtt hverfi með nýjum húsum en innan um voru eldri frumbyggjar og mikið um húsgrunna og stutt í náttúruna. Það var mikið af krökkum í hverfinu og mjög gaman að alast þar upp og við vorum stolt af því að búa í Kópavoginum. Við lékum okkur þar sem nú er íþróttasvæði Kópavogs og við Kópavogslækinn sem við kölluðum Skítalækinn og svo náttúrlega niðri í fjöru og í sand- gryfjunum í Fífuhvammslandinu. Kópavogur var á þessum tíma sérkennileg blanda af nýjum húsum og hálfgerðum sumarbústöðum. Í sumarbústöðunum bjó fólk sem flutti í þá í kringum seinni heims- styrjöldina af því að það fékk ekki húsnæði annars staðar og í flestum tilfellum voru þetta ekki merkileg húsakynni,“ segir Björn. Átta ár í Keflavík Björn gekk í skóla í Kópavogi þar til hann lauk stúdentsprófi, fyrst í barnaskóla síðan Víghólaskóla og að lokum í menntaskólann. „Menntaskólinn í Kópavogi var afskaplega lítill á þeim tíma og það einkenndi félagslífið. Þar þekktu allir alla með nafni og andinn var mjög góður. Skólinn var líka í mótun og mjög skemmtilegur tími að vera í honum. Ég útskrifaðist úr náttúrufræðideild enda hafði ég haft áhuga á líffræði frá því í gagnfræðaskóla. Á sumrin vann ég svo í byggingavinnu, oftast sem handlangari hjá múrara og get því alveg tekið múrverk að mér ef svo ber undir. Síðan fór ég í líffræði í Háskóla Íslands og tók eitt ár í kennslufræði og fór eftir það að kenna við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og var þar í átta ár.“ Maki Björns er Unnur Þorsteinsdóttir, forstöðumaður erfðagrein- ingar hjá DeCode og þau eiga einn son, Þorstein Björnsson, sem er fæddur 29. janúar 1989 og er því nítján ára. Unnur og Björn fluttu til Keflavíkur og fóru bæði að kenna við fjölbrautaskólann og skiptu á milli sín náttúrufræðikennslu við skólann. „Við ákváðum strax að flytja til Keflavíkur eftir að við tókum að okkur kennsluna því að við vildum ekki keyra á milli. Tíminn í Keflavík var frábær en eftir átta ár langaði okkur að breyta til og fara í framhaldsnám.“ Doktorsnám í Kanada „Árið 1991 fengum við ársleyfi, til að byrja með, til að fara í fram- haldsnám til Vancouver í Kanada og ætluðum að athuga hvernig okkur líkaði. Síðan leist okkur svo vel á landið að við ákváðum að vera lengur og fara bæði í doktorsnám. Námsfyrirkomulagið í Uni- versity of British Columbia sem við sóttum var þannig að ef maður náði ákveðinni einkunn og stóðst væntingar gat maður sleppt meist- aranámi og farið beint í doktorsnám og þar sem okkur gekk báðum vel gerðum við það. Við vorum sex ár í Vancouver og önnur þrjú ár í Montreal eftir að við kláruðum námið. Kanada er í mínum huga stórkostlegt land og mjög gott að búa þar, enda er þar það besta frá Skandinavíu og Bandaríkjum Norður-Ameríku.“ Doktorsverkefni Björns fjallaði um boðskipti í plöntum við stressandi oxunarálag og hvernig er hægt að nota erfðatækni til að hafa áhrif á þessi boðskipti. „Ég hafði mikinn áhuga á möguleikum erfðatækninnar og sá fyrir mér mikla möguleika á því sviði hjá plöntum. Doktorsverkefni Unnar fjallaði aftur á móti um stjórnun og sérhæfingu blóðstofnfruma með sérstakri áherslu á svokölluð Hox-stýrigen.“ Snúið heim Árið 2000 snúa Björn og Unnur aftur heim til Íslands. „Satt best að segja vorum við ekkert á þeim buxunum að koma heim og okkur stóð báðum til boða starf í Kanada. Málið æxluðust þó þannig að ég var að tala við kollega minn í Svíþjóð, sem heitir Einar Mäntylä, um að gaman væri að prófa hvort væri hægt að gera eitthvað á Íslandi með plöntuerfðatækni. Við höfðum verið í samskiptum lengi, hugsuðum á sömu nótum, og ákváðum því að láta á reyna. Úr varð að ég sótti um heimkomustyrk frá RANNÍS með ákveðið plöntuerfðatæknilegt verk- efni sem gekk út á það að nota plöntur til að framleiða sérvirk prótein fyrir lyf og fleira. Ég fékk styrkinn og við komum heim í framhaldi af því. Ég var ráðinn til Iðntæknistofnunar til að sinna verkefninu í sam- vinnu við Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Eftir nokkra mánaða starf hjá Iðntæknistofnum var ákveðið að stofna fyrirtæki í kringum verkefnið og það er í dag ORF Líftækni hf.,“ segir Björn. ORF Líftækni hf. stofnað Björn stofnaði ORF Líftækni hf. ásamt Einari Mäntylä og Júlíusi B. Kristinssyni í lok árs 2000. Nafn fyrirtækisins, ORF, hefur vísun í rammíslenskan uppruna fyrirtækisins og uppskerutengt amboð, orfið, sem var lykiltæki í landbúnaði til forna. ORF hefur ekki síður tengingu við erfðavísindin á alþjóðavísu. ORF er stytting á Open Reading Frame sem er heiti á opinni lesröð í geninu en það er sá hluti gensins sem þýddur er yfir í prótein. Heiti fyrirtækisins vísar því í senn til uppskeru, gena og próteina. „Væntingar okkar til verkefnisins voru miklar og við lögðum mikla vinnu í að fá fjármagn frá bæði iðnaðar- og landbúnaðarráðuneyti en það gekk því miður ekki eftir. Í framhaldi af því vorum við hvattir til að stofna fyrirtæki í kringum verkefnið til að reyna að fá einka- aðila til að fjármagna það. ORF var formlega stofnað um áramótin D R . B j ö R n ö R v a R Í n æ R m y n D

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.