Frjáls verslun - 01.10.2008, Qupperneq 63
64 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
Veisluþjónustan Kokkarnir, sem stofnuð var í ágúst 2002, er ávallt með glæsilegar jóla- og áramóta-
gjafakörfur á boðstólum.
Hvers konar körfur eru vinsælastar hjá
ykkur, þ.e. hvað setjið þið í þær?
„Miðlungsdýru körfurnar okkar eru alltaf
vinsælastar hjá okkur en svo er ákveðinn
hópur sælkera sem vill fá það besta í mat og
drykk í veglega körfu til þess að gefa starfs-
mönnum og eða viðskiptavinum fyrir jólin.“
Þið eruð með ykkar eigin framleiðslu á ein-
stökum vörum, er það aðallega meðlæti?
„Við framleiðum sjálfir öll patéin sem við
höfum á boðstólum og þau eru löguð af
matreiðslumönnunum okkar. Við gröfum
líka villigæsir, heitreykjum aliendur og svo
bjóðum við að sjálfsögðu allt mögulegt
meðlæti, t.d. chutney og cumberlandsósu
með paté-unum og valhnetuhunang með
ostunum. Einnig erum við með okkar eigin
graflaxsósu og piparrótarsósu til þess að
njóta með reykta laxinum. Við höfum verið
að prófa okkur áfram með þessar vörur
til þess að hafa í körfunum undanfarin
ár en nú hef ég sett þær upp í sérstaka
vörulínu.“
Hverjir kaupa körfurnar?
„Þeir viðskiptavinir sem kaupa gjafakörfurnar
eru af öllum toga því körfurnar og kassarnir
sem við bjóðum eru svo mismunandi. Við
erum með allt frá mjög ódýrum einingum og
upp í mjög stórar sælkerakörfur.“
Er mögulegt að kaupa jólahlaðborð hjá
ykkur til þess að hafa ýmist í heima-
húsum eða vinnustöðum?
„Já, hægt er að leigja Fóstbræðraheimilið
á Langholtsvegi fyrir stóra hópa með veit-
ingum frá okkur og sömu sögu er að segja um
salinn á sjöundu hæð Cabin hótelsins. Ann-
ars erum við að fara með jólahlaðborð út um
allan bæ í fyrirtæki og heimahús. Við leggjum
alltaf stolt okkar í að vera með einhverjar
nýjungar á hverju ári í jólahlaðborðunum en
vissulega þarf alltaf að gæta þess að hið klass-
íska, eins og purusteikin, síldin, hangikjötið,
patéin og svo reykti og grafni laxinn, sé á
borðum. Einnig er mjög mikið um litlar
sælkeraverslanir í heimahúsum.“
Rúnar Gíslason er hjá Kokkunum.
Kokkarnir
„Við framleiðum sjálfir
öll patéin sem við
höfum á boðstólum
og eru þau löguð af
matreiðslumönnunum
okkar. Við gröfum líka
villigæsir, heitreykjum
aliendur og svo erum
við að sjálfsögðu með
allt mögulegt meðlæti
með þessum vörum.“
ÓMÓtStæðILeGAr JÓLA- OG ÁrAMÓtAKörFUr
www.kokkarnir.is
K
yN
N
IN
G