Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 65
66 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
Ostakörfurnar frá Mjólkursamsöl-unni, með úrvali af bragðgóðum íslenskum ostum, eru tilvalin jóla-
gjöf fyrir fyrirtæki og einstaklinga. „Undan-
farin ár hafa verið í boði sex mismunandi teg-
undir af ostakörfum, allt frá litlum körfum
upp í stórar,“ segja þær Erna Erlendsdóttir
verkefnastjóri og Guðný Steinsdóttir mark-
aðsstjóri sem báðar starfa hjá Mjólkursamsöl-
unni. „Einnig er hægt að velja staka osta að
vild og svo býðst öllum að bæta annarri mat-
vöru, víni eða gjafavöru í körfuna þannig að
allir ættu að geta fundið körfu við sitt hæfi.“
Körfurnar innihalda fjölbreytilegt úrval af
íslenskum ostum ásamt kexi og sultu. Nýjasta
viðbótin í ár hjá MS er síðan lítill bæklingur
með upplýsingum um osta. Í bæklingnum
má fá hugmyndir um hvaða ostar og vín fara
vel saman og síðast en ekki síst eru í honum
nokkrar gómsætar uppskriftir.
Kaupandinn fær körfuna afhenta pakk-
aða í sellófanpappír með slaufuborða svo
hér er óneitanlega um mjög skemmtilega
gjöf að ræða. Að auki er boðið upp á sér-
staka ostakassa til að senda til útlanda, að
sögn þeirra Ernu og Guðnýjar. „Gaman er
að segja frá því að í ostakörfusölunni hefur
hvert sölumetið verið slegið á fætur öðru á
undanförnum árum og að sjálfsögðu er stefnt
að því að gera jafnvel enn betur í ár en áður
hefur verið gert.“
Hátíðarvörur MS
Hjá Mjólkursamsölunni hafa menn á hverju
ári verið iðnir við að framleiða sérstakar
jólavörur. Sem dæmi má nefna skógarberja-
ostaköku, jóla-brie, jóla-yrju og ýmsar fersk-
vörur svo sem jóla-jógúrt og jóla-hrísmjólk.
Nýjungin í ár er sérstakur hátíðarostur sem
bragðast einkar vel og hefur honum verið
vel tekið.
ný vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 var ákveðið að stórauka
framboð Mjólkursamsölunnar á sykurminni
vörum sem jafnframt eru án sætuefna. „Nú
þegar hafa tveir vöruflokkar í anda þess-
arar stefnu litið dagsins ljós,“ segja Erna og
Guðný. „Fyrst má nefna Krakkaskyr, sem
kom á markað í sumar. Það inniheldur minni
sykur og auk þess inniheldur Krakkaskyrið
þrisvar sinnum meira af hreinum ávöxtum
en aðrar hefðbundnar vörur og eru ávextirnir
20% af heildarinnihaldinu.
Í september kom svo á markað nýr KEA
skyrdrykkur sem er án hvíts sykurs, án sætu-
efna og með agavesafa, drykkurinn inniheldur
einnig 10% ávexti sem er töluvert meira en
er í öðrum sambærilegum drykkjum. Á
næstu misserum eru fleiri vörur, ríkar af
ávöxtum en sem innihalda minni sykur og
eru án sætuefna, væntanlegar á markaðinn. Í
hinni nýju stefnu er ennfremur lögð áhersla
á að minnka skammtastærðir í samræmi við
manneldissjónarmið. Þá má nefna að nú
er lögð rík áhersla á þróun léttari osta með
nýrri og bættri framleiðsluaðferð. Eftir næstu
áramót mun t.d. nýr gulur ostur með ein-
ungis 9% fituinnihaldi líta dagsins ljós. Þrátt
fyrir lága fituprósentu er hann mjúkur og
bragðgóður og segja þær Erna og Guðný að
spennandi verði að sjá hvaða viðtökur þessi
nýi ostur fái hjá neytendum.
Hér eru þær Guðný og Erna með sælkeraostakörfu, frábæra jólagjöf sem allir kunna vel að meta.
MS
Jólavörurnar frá MS
hafa notið mikilla vin-
sælda og vekja ævin-
lega mikla ánægju
meðal neytenda.
SæLKerAOStAKörFUr – SPeNNANdI JÓLAGJöF
www.ms.is
Gómsæt gjöf fyrir sælkera
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
6
2
8
6
������������
Á vefsí›u okkar www.ostur.is er a› finna nánari uppl‡singar um
sælkeraostakörfurnar okkar og ostana sem í fleim eru.
fiú fær› rá›gjöf og tilbo› hjá sölufulltrúum okkar í eftirfarandi símanúmerum;
Söludeild Reykjavík s. 569 2200 og söludeild Akureyri s. 460 9610.
Einnig getur›u sent fyrirspurnir á netföngin ostakorfur@ms.is og soludeild@ms.is e›a me› bréfsíma í númer 569 2222.
Falleg gjafakarfa me› úrvali af brag›gó›um íslenskum ostum
er tilvalin jólagjöf handa starfsfólki og vi›skiptavinum
K
yN
N
IN
G