Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 71

Frjáls verslun - 01.10.2008, Page 71
72 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 K YN N IN G Jón og Óskar eru með verslanir á Laugavegi, í Kringlunni og Smáralind og starfrækja einnig eitt stærsta fram- leiðsluverkstæði á landinu. Þar hafa þeir einstaklega góða aðstöðu til þess að framleiða mikið af skartgripum. Hákon Jónsson, við- skiptafræðingur, og faðir hans; Jón Sigur- jónsson, gullsmiður: ,,Við gerum allt hér á verkstæðinu sem lýtur að smíði, viðgerðum og úrsmíði. Fyrir- tækið er 37 ára gamalt og óhætt að segja að við höfum selt óhemju mikið af skart- gripum gegnum tíðina. Mikil þjónusta fylgir því – þar sem skartgripirnir eru eðli málsins samkvæmt sígildir og því lengi í notkun. Það þarf stundum að gera við þá, skartgripum er aldrei fleygt eins og gömlum flíkum. Fyrstu trúlofunarhringarnir sem við seldum eru enn í fullri notkun og þá þarf stundum að stækka eða minnka eftir atvikum.“ Hver er sagan á bak við ICEcold-línuna? ,,Við gullsmiðir erum jú alltaf að hanna, smíða og framleiða. Við höfðum verið hönn- uðir lengi þegar við ákváðum að taka eitthvað sérstakt út sem við vorum að vinna með og búa til sérstæða línu af skarti. Hönnun skart- gripanna í ICEcold-línunni minnir á örsmáa ískubba, ísjakana og sjálft Ísland. Margir gullsmiðir vitna einmitt í náttúruna í dag, hraunið og hafið er vinsælt þema, en við vorum í rauninni fyrstir til að tengja okkur við ísinn.“ Jón segir að hugmyndin að baki hönnunar ísmensins sé sprottin frá mynstri af eldhúsglugganum hans, einn kaldan vetr- armorgun: ,,Ég tók myndir af mynstrinu og vann út frá því. Ísmenið endurspeglar landið sem við búum í og hversu válynd veður geta orðið. Ísmenið er úr silfri og er rhodiumhúðað.“ ICEcold línan - hærri standard ,,Við lok ársins 2000 var ICEcold-línan svo sýnd í fyrsta sinn á iðnsýningu í Perlunni. Þar fengum við mjög góð viðbrögð þar sem fólk varð hugfangið af ICEcold-hugmyndinni og við héldum áfram að þróa hana. í ICEcold-línunni fást hringar, armbönd, hálsmen, eyrnalokkar og ermahnappar. Við vildum ekki fara með þessa línu í silfur, því það eru svo margir í silfri, og þeir gullsmiðir sem hafa verið að markaðssetja fyrir túrista vinna aðallega úr silfri. Við vildum geta boðið erlendum ferðamönnum og Íslendingum upp á hærri ,,standard“ og ICEcold-línan er úr gulli með demöntum og eðalsteinum eins og rúbín og safír. Það er skemmtilegt að segja frá því að hægt sé að selja hágæðavöru til efnameiri erlendra ferðamanna og það er einkar ánægjulegt að fá pantanir í gegnum netið frá fólki sem hefur verið hér á ferð og er nú farið að safna skartgripum úr ICEcold- línunni. Íslendingar eru mjög hrifnir af ICEcold og ísmenunum og kaupa þau gjarnan til þess að senda vinum og ættingjum erlendis. Það er skemmtilegt við menin að þau klæða alla aldurshópa, rétt eins og Ice cold-línan.“ Jón og Óskar ICEcold – ískalt gull og heitir demantar www.jonogoskar.is ICEcold línan frá Jóni og Óskarii 14 karata gullhringur með demöntum. 14 karata gullmen með demöntum. 14 karata gull armband.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.