Frjáls verslun - 01.10.2008, Síða 80
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8 81
Bílar
Besti Bíll í heimi?
Hann ER besti bíll í heimi. Hinn fullkomni fjölskyldubíll, vetr-
arbíll, með sítengdu fjórhjóladrifi, kappakstursbíll, fljótari
en Porsche 911 turbo eða Ferrari. Rúmgóður og með betri
aksturseiginleika en nokkur annar. Hver? Jú, samkvæmt
einróma áliti heimsbílapressunnar er þetta nýi NISSaN
GT-R. Bíll sem kom á markaðinn á þessu ári og hefur slegið
alla út af laginu fyrir það hversu frábær hann er. Vélin er
tæpra 500 hestafla; hámarkshraðinn er eitthvað á fjórða
hundrað kílómetrar; það tekur sjálfskiptinguna 0,2 sek. að
skipta um gír. Hann er stór, 4,66 metrar að lengd, semsagt
hinn eini sanni fjölskyldubíll. Ingvar Helgason er með
Nissan-umboðið hér heima.
BaBÚ Og BíBB BíBB
Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, valdi Volkswagen
Tiguan sem bíl ársins. Í umsögn dómnefndar segir: „VW Tiguan
er yfirburðabíll og ekki aðeins í samanburði við aðra jepplinga.
Hann er eins og hugur manns og hyggilegur hvernig sem á er
litið. Traustvekjandi bíll í sívaxandi flokki jepplinga og býður upp á
skemmtilegar tækninýjungar.“
Volkswagninn er eins og sniðinn fyrir íslenskar aðstæður, rás-
fastur með sítengd fjórhjóladrif, og með nýjustu gerðir véla, sem
eru alveg fáránlega sparneytnar. Tiguan var veitt verðug keppni
af Hondu accord, sem sigraði í flokki stærri fjölskyldubíla. Svo er
hann laglegur, það spillir ekki fyrir.
lOksins, lOksins
Bandaríski bílarisinn General Motors á nú í bölv-
uðu basli. En það er þó eitt ljós í myrkrinu. Í fyrsta
sinn í 22 ár tókst honum að vinna með millistærð-
arbílnum Opel Insignia Car of tHE YEar. Það eru
fimmtíu og níu bílasérfræðingar, auk blaðamanna
frá 23 löndum, sem hafa veg og vanda af kjörinu.
Bíllinn er skemmtilegur, djarfur í útliti, fallegur.
Það sem dómnefndin féll einkum fyrir er nýstár-
legt útlit, nákvæmur þýskur frágangur, en ekki síst
hve vel grunnútgáfan er búin margvíslegri nýjustu
tækni, en Opel Eye þekkir og skynjar vegaskilti
og merkingar. Svo er víst frábært að keyra hann.
Mikill kostur. Hvenær koma fyrstu bílarnir hingað
heim? Vonandi sem fyrst.