Frjáls verslun - 01.10.2008, Síða 85
86 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 8
Lífsstíll
Gunnar Már Sigurfinnsson,
framkvæmdastjóri Icelandair
Cargo, bjó í Frankfurt í
Þýskalandi í tæp níu ár.
Fyrst var hann sölustjóri
hjá Icelandair og síðan varð
hann svæðisstjóri fyrirtæk-
isins í Mið-Evrópu.
„Það er frábært að
búa í Frankfurt sem er við-
skipta- og samgönguborg.
Þar iðar allt af lífi, en í
borginni er mikið af góðum
veitingastöðum og mörk-
uðum, og það er gaman
að fara á fótboltaleik á
einum flottasta fótboltavelli
í Evrópu. Frankfurt er stór-
fengleg en þar eru sumar af
hæstu byggingum í Evrópu.“
Gunnar Már nefnir líka hin
ýmsu tímabil: Hvítur aspas
er í hávegum hafður á
vorin, þá kemur jarðarberja-
tímabilið, vínuppskeran á
haustin, karnival og bjórhá-
tíðin. „Þetta kryddar lífið.“
Svo má ekki gleyma jóla-
markaðnum í desember.
Borgin er miðsvæðis og
er stutt í allar áttir, svo sem
í helstu vínekrur Þjóðverja
og í Rínardalinn. Þá er stutt
til borganna Heidelberg,
Kölnar og München.
Framkvæmdastjórinn
segist fara eins oft og hann
kemst til Frankfurt eða
tvisvar til þrisvar sinnum á
ári.
Uppáhaldsborgin:
ÞaR eR fRábæRt að búa
Þorvaldur Jacobsen, framkvæmdastjóri
kjarnalausna hjá Nýherja, var um 13
ára aldur þegar hann prófaði stang-
veiði í fyrsta skipti og hann stundaði
þetta sport á menntaskólaárunum með
félögum sínum.
„Veiðimennskan var ekki upp á
marga fiska í fyrstu en síðan er komin
miklu meiri alvara og áhugi í þetta.
Í dag veiði ég bara á flugu sem er
heillandi veiðiaðferð; eða kannski stíl-
hrein. Maður er með flugustöngina,
kastar flugum og leitar leiða til að ögra
laxinum og fá hann til að taka og ef það
tekst er baráttan bara rétt að byrja. Það
þarf þolinmæði til að þreyta fiskinn og
mér finnst það að sleppa fiskinum vera
punkturinn yfir i-ið. Þetta er bókstaflegt
einvígi milli fisksins og veiðimannsins.“
Þorvaldur segir það hreinsa huga og
sál að vera úti í náttúrunni að veiða.
„Maður er það einbeittur við veiðarnar
að það kemst ekkert annað að; adr-
enalínið þegar fiskur tekur og spennu-
fallið þegar honum er sleppt. Þetta er
einfaldlega ótrúlegt kikk frá upphafi til
enda.“
Þorvaldur fer í um fimm veiðitúra
á ári og er þá tvo til þrjá daga í senn.
Hann veiðir yfirleitt í Svalbarðsá í
Þistilfirði eða Eyjafjarðará en þar ræður
reyndar sjóbleikjan ríkjum.
Gunnar Már Sigurfinnsson. „Það er frábært að búa í Frankfurt sem er við-
skipta- og samgönguborg. Þar iðar allt af lífi, en í borginni er mikið af góðum
veitingastöðum og mörkuðum, og það er gaman að fara á fótboltaleik á
einum flottasta fótboltavelli í Evrópu.“
Stangveiði:
einvígi milli fiSKSinS og veiðimannSinS
Þorvaldur Jacobsen. „Maður er það einbeittur
við veiðarnar að það kemst ekkert annað að;
andrenalínið þegar fiskur tekur og spennufallið
þegar honum er sleppt.“