Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
SKEMMTILEGIR DANIR, eins og þeirra er von og vísa. En
satt best að segja átti ég von á því að þessir ágætu hagfræðingar
yrðu málefnalegri. Það stenst varla skoðun að þeir hafi ekki sett
verðfall hlutabréfa í sögulegt samhengi og sagt að verðfall hluta-
bréfa upp á 20 til 30% væri eðlilegt þar sem markaðurinnn væri að
leiðrétta sig eftir mjög svo óeðlilegar og óraunhæfar hækkanir síð-
ustu mánuðina. Halda þeir Carsten og Lars að hægt sé að fá 100%
ávöxtun ár eftir ár af hlutabréfum á Íslandi og ef það náist ekki þá
sé allt að fara til fjandans?
ÚRVALSVÍSITALAN VAR KOMIN í 6.900 stig í febrúar og
það var algerlega út úr kortinu. Hún var 4.500 stig í október sl. og
þá stóðu menn á öndinni af hrifningu. Allt var í lukkunnar standi.
Hún var í 3.600 stigum fyrir einu og hálfu ári og þá töldu allir að
markaðurinn væri þaninn til hins ýtrasta og best væri að selja.
Fyrir rúmum þremur árum var hún 1.200 stig. Hvers vegna sýndu
Danirnir kátu ekki þessa glæru?
ÞÁ ER ÞAÐ blessuð krónan. Síðan hvenær var hún talin
sterkasti gjaldmiðill í heimi? Hvers vegna rifjuðu þeir Carsten og
Lars ekki upp umræðu síðustu tíu ára á Íslandi um það hvort við
ættum að taka upp evru og kasta krónunni? Krónan getur ekki
annað en lækkað við gegndarlausan viðskiptahalla. Þegar við
bætast að nettókaup Íslendinga á erlendum verðbréfum voru 63
milljarðar í janúar og febrúar, miðað við 7 milljarða sömu mánuði í
fyrra, þá stuðla þau kaup - ein og sér - að falli krónunnar.
ÞAÐ ER HINS vegar rétt hjá þeim Carsten og Lars að Íslend-
ingar eiga heimsmet í erlendum skuldum sem hlutfall af lands-
framleiðslu. Þeir hefðu hins vegar mátt benda á að góður hluti af
skuldaaukningu síðustu ára hefði farið í að kaupa erlend fyrirtæki
og því segði hlutfall erlendra skulda af landsframleiðslu á Íslandi
ef til vill ekki alla söguna.
ÞAÐ ER AUGLJÓSLEGA að hægja á íslensku efnahagslífi.
Menn hafa orð á því að bankarnir séu ekki eins tilbúnir og áður
til að lána fjárfestum nánast hvaða fjárhæð sem er. Þá auka
hrikalegar olíuverðshækkanir á verðbólguna og leiða til minni
hagvaxtar á næstu mánuðum. Lækkun krónunnar blæs síðan enn
frekar upp verðbólgubálið. Verðbólgan er og verður helsti óvinur
launafólks og skuldugra heimila á Íslandi. Hún er hin raunverulega
ógn sem steðjar að okkur.
EN STUNDUM ERU efnahagsmál öfugsnúin. Við leggjum
mikið upp úr því að vera í AA-samtökum í bankaheiminum - en þá
birtast skyndilega einhverjir kátir Danir í hádegismat til okkar og
segja okkur að hætta að drekka og taka út timburmennina.
Jón G. Hauksson
RITSTJÓRNARGREIN
CARSTEN VALGREEN, aðalhagfræðingur Danske Bank,
og Lars Christensen, sérfræðingur hjá bankanum, voru
gestir á hádegisverðarfundi Félags viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga skömmu fyrir páska. Það var mikil guðsmildi að
fundurinn var í hádeginu ella hefðu fundarmenn haldið að
þetta væri síðasta kvöldmáltíðin.
CARSTEN OG LARS eru höfundar skýrslu bankans um
íslenska efnahagslífið sem nefndist
„Iceland: Geysir Crisis“ og hefur
skýrslan þótt helst til dramatísk.
Þeir sögðu áður en þeir héldu til
Íslands að þeir væru að fara beint
í gin ljónsins og höfðu mestar
áhyggjur af því að fjölmenn mót-
mæli yrðu í Leifsstöð við komu
þeirra - slík væri tilfinningasemin í
garð þeirra. Breskir fjölmiðlar hafa
nefnt þá mennina sem hafi bent á
að íslenska hagkerfið væri í nýju
fötum keisarans; væri í engu.
AÐ MATI ÞEIRRA Carsten og Lars stöndum við Íslend-
ingar í mikilli þakkarskuld við þá og aðra erlenda skýrsluhöf-
unda fyrir að veita okkur Íslendingum og íslensku efnahags-
lífi einhverja athygli og dengja yfir okkur neikvæðu skýrslu-
fargani. Þeir félagar voru svo ekki fyrr komnir til síns heima
í Kaupmannahöfn þegar þeir sendu frá sér nýja skýrslu á
sumardaginn fyrsta þar sem þeir sögðust síst af öllu hafa
tekið of djúpt í árinni; íslenska krónan væri mun veikari en
þeir hefðu gert ráð fyrir.
Í SJÁLFU SÉR kom ekkert nýtt fram hjá þeim Carsten
og Lars á hádegisverðarfundinum. Það var þetta hefðbundna.
Þeir bentu á að hlutabréf hafa fallið á Íslandi, krónan hafi
veikst til muna, skuldir þjóðarinnar væru heimsmet og
íslenska hagkerfið væri háð erlendu fjármagni - þannig að
við skyldum venjast svörtum skýrslum. Samt sögðu þeir að
Ísland stæði ekki frammi fyrir illum örlögum, íslenska hag-
kerfið hefði bara vaxið of hratt.
ÞAÐ VAR GAMAN að því þegar Lars Christensen greip
til líkingamáls um að veislan væri búin á Íslandi. Hann sagði
að eftir öll góð teiti segðu alvarlegir timburmenn til sín og
ráðlagði okkur að drekka ekki meira í bili, taka timburmenn-
ina út, en grípa ekki í afréttara. Með þessi heilræði gætum
við haldið næstu veislu fyrr en ella - og hann bað okkur að
drekka af meira viti í næsta partýi.
Það var mikil
guðsmildi að
fundurinn var í
hádeginu ella
hefðu fundar-
menn haldið að
þetta væri síðasta
kvöldmáltíðin.
SKÝRSLUFARGANIÐ:
Timburmenn og AA-samtök
The pursuit of perfection
DÝPTINA
Þegar þú ekur Lexus IS250 verður þér ljóst að hugatakið
„eðalvagn“ hefur öðlast nýja dýpt. Sérhver útfærsla í innrétt-
ingu, hvert smáatriði í vél og öðrum tæknibúnaði endur-
speglar kröfuna um fágun og fullkomnun, aðalsmerki þeirra
sem vilja standa öðrum framar. Þegar þú stofnar til kynna við
LEXUS IS250 skilurðu til fulls hvað felst í hárfínu jafnvægi.
Sjáðu, snertu og prófaðu Lexus IS250. Við erum sann-
færðir um að niðurstaðan verður gagnkvæm virðing. Það
mun ef til vill koma þér á óvart en við sáum það fyrir. Við
gerum nefnilega sömu kröfur til lúxusbíla og þú og njótum
þess að handleika það sem er fágað og fullkomið.
Verð frá 3.990.000 kr.
ÞÚ FINNUR
Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
32
29
6
0
4/
20
06