Frjáls verslun - 01.03.2006, Síða 16
FRÉTTIR
16 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
Samtök
ferðaþjónustunnar:
Það var glatt á hjalla í viðskiptaráðuneytinu þegar skrifað
var undir samstarf viðskiptaráðuneytisins, Viðskiptaháskól-
ans á Bifröst, Félags kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttis-
ráðs, Jafnréttisstofu og Samtaka atvinnulífsins um gerð
svonefndrar Jafnréttiskennitölu.
Það er rannsóknarsetur vinnuréttar- og jafnréttismála
við Viðskiptaháskólann á Bifröst sem reikna mun Jafn-
réttiskennitöluna út á hverju ári, en henni er ætlað á að
mæla jafnrétti í stærstu fyrirtækjum landsins og hvernig
það breytist ár frá ári.
Líkt og Frjáls verslun gerði á síðasta ári þá er ætlunin
að birta á hverju ári upplýsingar um konur í stjórnum 100
stærstu fyrirtækja landsins sem og upplýsingar um þær
konur sem gegna störfum forstjóra og framkvæmdastjóra í
100 stærstu fyrirtækjum landsins.
Ennfremur er ætlunin að móta nokkra mælikvarða á
árangur fyrirtækja í jafnréttismálum og raða fyrirtækjunum
upp á lista frá 1 til 100 eftir því hver staða jafnréttismála
er innan þeirra.
Hvað selur Ísland? Þetta var yfir-
skrift aðalfundar Samtaka ferða-
þjónustunnar sem haldinn var
nýlega. Ýmis spennandi erindi
voru lögð fram þar sem áhersla
var lögð á að velta upp sókn-
arfærum sem liggja í íslenskri
ferðaþjónustu.
En hvað selur Ísland? „Svör
framsögumanna á fundinum við
þessari spurningu voru oftast
þau að Ísland eigi að vera ekta
og frumlegt. Við þurfum að
selja íslenskan mat og íslenska
menningu,“ segir Erna Hauks-
dóttir, framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar.
„Ferðaþjónustan þarf að vera
menningartengd til að trekkja
fólk að og við þurfum að hafa
spennandi íslenska veitinga-
staði um allt land sem selja
íslenskt hráefni. Við verðum
að skapa okkur sérstöðu með
stórkostlegri náttúru, mat,
afþreyingu og öðruvísi þjónustu
þannig að útlendingum finnist
áhugavert að koma hingað til
lands. Til þess þurfum við að
vera með eitthvað annað en
það sem þeir fá úti á næsta
götuhorni heima hjá sér.“
„Einn af þeim, sem hélt
framsöguerindi á aðalfundinum,
var Hermann Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri OMD Nordic, en
hann varpaði fram þeim mögu-
leikum sem tæknin getur nýst
ferðaþjónustunni. Hermann
skýrði frá því hvernig tæknin
minnkar heiminn og að fólk vill
ferðast meira á eigin vegum
en áður. Þetta kallar á mikla
nýsköpun í ferðaþjónustu,
nýsköpun sem getur fært fólk
til okkar og það er það sem við
þurfum stöðugt að hugsa um,“
segir Erna.
Samstarfi fagnað. Frá vinstri: Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
Jafnréttisstofu, Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, Elín Blöndal frá
Viðskiptaháskólanum á Bifröst, Jón Kristjánsson félagsmálaráðherra, Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, Margrét Kristmannsdóttir, formaður FKA, og
Hannes Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.
Samstarfi fagnað - hönd í hönd
Kátir fundarmenn á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar. Í fremstu röð frá vinstri: Svanhildur Konráðs-
dóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, Anna Sverrisdóttir, markaðs- og sölustjóri Bláa lónsins, Halldór
Harðarson, markaðsstjóri Icelandair, Gunnar Már Sigurfinnsson, markaðs- og sölustjóri Icelandair, Berg-
þór Ólason, aðstoðarmaður samgönguráðherra.
Hvað selur
Ísland?