Frjáls verslun - 01.03.2006, Side 19
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 19
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA
Þegar vekjaraklukkan hringir klukkan sjö
á morgnana er rismál hjá Ragnhildi Geirs-
dóttur, framkvæmdastjóra Promens hf.
Morgunverðurinn er einfaldur: jógúrt eða
morgunkorn sem hún borðar um leið og hún
flettir dagblöðunum. Á níunda tímanum er
hún svo komin á skrifstofu fyrirtækisins við
Suðurlandsbraut, þar sem fyrsta verk dagsins
er að kveikja á tölvunni og lesa tölvupóstinn.
„Ég eyði talsverðum tíma í tölvupóstinn yfir
daginn og þónokkuð af mínum samskiptum
fer í gegnum hann. Þá má því segja að hann
sé í raun ákveðin þungamiðja í starfinu. Ætli
maður sé ekki gjarnan að senda þetta fjörtíu
til fimmtíu tölvubréf á dag,“ segir Ragnhildur
sem tók við núverandi starfi í byrjun janúar
síðastliðins.
Tala við tíu svæðisstjóra
Promens er ein stærsta fyrirtækjasamsteypa
heims á sviði steyptra plasteininga og starf-
rækir 20 verksmiðjur í 12 löndum - og eru
starfsmenn samsteypunnar um 1.300 tals-
ins. „Við höfum verið að breyta skipulagi í
félaginu og ég er hér nýlega tekin við starfi
forstjóra. Því hef ég verið mikið á ferðalögum
að undanförnu. Hef reynt að heimsækja allar
verksmiðjurnar og kynna mér starfsemina þar.
Þetta hefur farið upp í fjórar utanlandsferðir á
mánuði, sem ég vona að verði eitthvað færri
þegar fram líða stundir.“
Hjá Promens starfa tíu svæðisstjórar og
fundar yfirstjórnin með þeim í byrjun hvers
mánaðar þar sem farið er yfir uppgjör liðins
mánaðar. „Þess á milli heyri ég alltaf reglu-
lega í þeim sem eru með stærstu svæðin,
nokkrum sinnum í viku. Nei, ég tek ekki
símtölin eftir neinni ákveðinni reglu eða á
fyrirfram ákveðnum tíma heldur einfaldlega
þegar báðum aðilum hentar.
Hér á skrifborðinu mínu er
ég með nokkra litla gula lím-
miða og þá nota ég svolítið
sem stjórntæki. Þegar ég
er búinn að leysa viðfangs-
efnið get ég hent miðanum,“
segir Ragnhildur sem kveðst
gjarnan sinna persónulegum
símtölum í bílnum þegar hún
er á ferðinni milli staða, þótt
slíkt sé engin regla.
Fylgifiskar í hádeginu
„Í hádeginu finnst mér gott að fá mér eitt-
hvað af léttara taginu, til dæmis salat eða
brauð. Héðan er heldur ekki langt út á Fylgi-
fiska og þangað röltum við samstarfsfólkið
oft,“ segir Ragnhildur sem segir formlegum
vinnudegi sínum gjarnan ljúka á sjöunda
tímanum. Þá drífur hún sig í líkamsrækt í Nor-
dica Spa eða út að hlaupa og segist koma
til baka sem ný manneskja.
„Oft fæðast góðar hugmyndir
á hlaupabrettinu eða þegar
maður fer út í náttúruna.
Ósjálfrátt fer maður þá að
setja viðfangsefni dagsins í
annað samhengi og þá kemur
stundum sú lausn á hlutunum
sem maður hefur lengi leitað
að. Sama gildir ef maður er
úti eða gengur á fjöll, sem er
mikið áhugamál mitt.“
„Farsímanúmerið mitt er svo sem ekkert
leyndarmál, ég reyni að vera aðgengilegur
stjórnandi,“ segir Ragnhildur sem segist oft
vinna um helgar enda gefist þá oft tími til að
sinna verkefnum sem mæti afgangi í amstri
hins rúmhelga dags. Samt sé mikilvægt
að gleyma ekki sjálfum sér enda þótt starf
stjórnandans sé krefjandi og að sama skapi
skemmtilegt - og milli vinnu og einkalífs þurfi
því að vera bærilegt jafnvægi.
Tölvupósturinn
er þungamiðja
„Hér á skrifborð-
inu mínu er ég
með nokkra litla
gula límmiða og
þá nota ég svo-
lítið sem stjórn-
tæki.“
RAGNHILDUR GEIRSDÓTTIR
Ragnhildur Geirsdóttir,
framkvæmdastjóri Promens.