Frjáls verslun - 01.03.2006, Síða 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
„Síðustu vikurnar hafa nokkrir starfsmenn hér í
fyrirtækinu verið forfallaðir vegna veikinda, sem
hefur sett strik í reikninginn. Við þær aðstæður
kemur þó í ljós að ekkert stórvægilegt gerist
í fyrirtækjum þótt framkvæmdastjórinn sé frá í
nokkrar vikur. Þetta rúllar allt áfram. En þegar
starfsmaðurinn á símanum og eða sá sem sér
um ræstingarnar eru frá er allt í hers höndum.
Þá þurfa allir að leggjast á árar og sjálf tel ég
ekkert eftir mér að ganga hér í öll störf - geri
bara það sem þarf,“ segir Margrét Kristmanns-
dóttir, framkvæmdastjóri Pfaff - Borgarljósa.
Erfiðustu símtölin fyrir hádegi
Margrét er gjarnan komin til vinnu um klukkan
átta á morgnana og segir að fyrsti klukkutími
dagsins verði sér drjúgur til að sinna ýmsum
aðkallandi verkefnum. Svara tölvupósti, sinna
fjármálum og fleira. „Ég vakna um klukkan sjö
og þá tekur við að koma börnunum, sem eru
10 og 13 ára, í skólann. Stundum byrja ég
daginn á því að fara í líkamsrækt. Mér finnst
ómögulegt að fara í ræktina nema snemma á
morgnana,“ segir Margrét sem drekkur fyrsta
kaffibolla dagsins með starfsfólki sínu um
klukkan níu. Þá skrafar fólk um það sem hæst
ber í þjóðfélaginu þann daginn og það hvernig
síðasti vinnudagur gekk.
„Með þessu sé ég hvernig landið liggur,“
segir Margrét sem gjarnan er á skrifstofunni
fram til hádegis. Þar hefur hún margvíslegum
verkum að sinna enda hefur hún með starfs-
mannamál og launaútreikninga að gera, mark-
aðsmálin, fjármálin, bókhaldið jafnframt því að
annast innkaup að hluta. Hún kveðst einnig
reyna að taka öll erfiðustu símtölin fyrir hádegi,
bæði þau sem reyna á sig og viðmælanda sinn.
Fólk sé alla jafna best fyrir kallað árla dags og
þá sé auðveldast að finna lausnir á erfiðum við-
fangsefnum.
Gönguferðir í Gróttu
Áhugi á hundum hefur lengt fylgt Margréti. Hún
tekur heimilishundana tvo með sér í vinnuna og
fer ævinlega með þá í stutta gönguferð í hádeg-
inu. Sest svo niður eftir hundaröltið og fær sé
hádegissnarl, til dæmis skyr eða brauð. Stendur
svo vaktina í fyrirtækinu fram til klukkan
fimm en snýr þá aftur heim til að sinna búi og
börnum.
„Ég skipulegg mig þannig að
ég geti átt kvöldin og helgarnar
með fjölskyldunni. Stundum
koma þó rólegar stundir inn
á milli sem ég get notað
til að sinna tilfallandi verk-
efnum vegna vinnunnar
en slíkt er hægðarleikur,
enda get ég tengt mig
inn á tölvukerfið hér í
vinnunni að heiman.
Raunar er vinnan
oft mjög nálæg, í
göngutúrum með
hundana um Sel-
tjarnarnesið,
þar sem ég
bý, vakna oft
góðar hug-
myndir. Í
roki og rign-
ingu vestur
í Gróttu. Þær
lausnir sem
ég hef lengi
leitað að vegna
aðsteðjandi við-
fangsefnum hér
í vinnunni koma
gjarnan þá,“
segir Margrét
Kristmanns-
dóttir.
Hundarölt í hádeginu
„Sjálf tel ég
ekkert eftir mér
að ganga hér í
öll störf.“
MARGRÉT KRISTMANNSDÓTTIR
Margrét Kristmannsdóttir,
framkvæmdastjóri Pfaff
- Borgarljósa.
EIK FASTEIGNAFÉLAG HF // Sóltún 26 // 105 Reykjavík // s: 590 2200 // eik@eik.is // www.eik.is
Lykillinn a› auknum hagna›i
Kynntu flér hvernig flú getur auki› hagna›inn
hjá flínu fyrirtæki nú í ár og til lengri tíma
Eik sérhæfir sig í rekstrarleigu atvinnuhúsnæ›is, flar me› tali› a›
kaupa fasteignir fyrirtækja og leigja fleim flær aftur til lengri e›a
skemmri tíma. fiannig geta fyrirtæki eflt eigin rekstur og losa› um
umtalsver›a fjármuni. Hvort sem flú átt húsnæ›i sem flig langar
til fless a› selja og leigja aftur e›a ert a› leita flér a› heppilegu
atvinnuhúsnæ›i er Eik me› lausnina fyrir flig.
Haf›u samband vi› sérfræ›inga okkar í síma 590 2200
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA