Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 27
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 27
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA
Annasamt starfs borgarstjórans í Reykjavík
miðast jafnan við þá fundi með embættis-
mönnum og pólítískum fulltrúum sem haldnir
eru á föstum tímum í hverri viku. Önnur
embættisverk ráðast af þessu; fundirnir eru
fastir punktar og öðrum erindum er raðað
inn á milli og sinnt eins og tími og tök leyfa.
„Yfirleitt vakna ég þegar klukkuna vantar
korter í sjö á morgnana. Mér finnst mikilvægt
að gefa mér rúman tíma fyrst á morgnana,
meðal annars til þess að lesa blöðin,“ segir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir sem byrjar
daginn á að fylgja dóttur sinni í Laugarnes-
skólann og fljótlega eftir það er hún komin á
skrifstofu sína í Ráðhúsinu.
Hundruð tölvubréfa á dag
„Þegar hingað kemur fæ ég mér kaffi með
samstarfsfólki mínu og sest síðan hér niður
á skrifstofunni. Fer þá á Netið og renni yfir
bæði fréttasíður og helstu póltísku umræðu-
vefi. Það er hluti af starfinu að fylgjast vel
með allri umræðu í þjóðfélaginu,“ segir Stein-
unn Valdís, sem í gegnum ritara sinn fær
fjölda skilaboða um að hafa samband við fólk
símleiðis - og sömuleiðis berast tugir ef ekki
hundruð tölvubréfa yfir daginn. Mörgum erind-
anna svarar hún sjálf, til dæmis þeim sem
þola enga bið. Eiríkur Hjálmarsson, aðstoðar-
maður borgarstjóra, greiðir úr öðrum málum
og aðrir eftir atvikum.
Steinunn Valdís tók við starfi borgarstjóra
í desember 2004. Þá hafði hún verið borg-
arfulltrúi í tíu ár og þekkti því borgarmálin
út og inn og sömuleiðis helstu persónur og
leikendur á sviði þeirra. „Það kom mér á
óvart hve mikið áreiti fylgir embættinu. Ótrú-
lega margir þurfa að ná tali af borgarstjóra
og sömuleiðis er viðveru hans óskað við hin
ýmsu tilefni. Hins vegar verður í þessu efni
eins og öðrum að forgangsraða og það er
hvorki hægt að gera sjálfum sér né öðrum að
vera að öll kvöld og helgar og koma síðan
í móttökur úrvinda af þreytu. Allir verða að
þekkja sín takmörk.“
Endurnærist í Laugum
Í hádeginu fer Steinunn Valdís mjög gjarnan
í líkamsrækt í Laugum. „Ræktin gerir mér
gott. Ég næ að útiloka mig frá öllu öðru og
gleyma þeim viðfangsefnum sem bíða hér í
vinnunni. Því er ég alveg endurnærð á líkama
og sál þegar ég kem til baka hingað í vinn-
una þegar klukkan hallar í tvö. Illu heilli hef
ég verið latari við að fara í Laugar síðustu
vikur en ég vænti þess að geta tekið upp
þráðinn fljótlega,“ segir borgarstjórinn.
Þegar heimilisstörfum á kvöldin lýkur segir
hún að oft gefist tími til vinnu og kvöldin
verði oft drjúg til þess. „Ég horfi lítið á sjón-
varp en sit þeim mun meira við tölvuna.
Einmitt á kvöldin fæ ég oft fínar hugmyndir
og kem þeim áleiðis í tölvupósti. Þá nota
ég kvöldin gjarnan til að lesa ýmis gögn og
skýrslur sem tilheyra starfinu, enda er tími til
slíks takmarkaður yfir daginn þegar erilinn er
sem mestur.“
Áreitið fylgir embættinu
„Það er hluti af starf-
inu að fylgjast vel
með allri umræðu í
þjóðfélaginu.“
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir,
borgarstjóri.