Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2006, Page 29

Frjáls verslun - 01.03.2006, Page 29
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 29 DAGBÆKUR FORSTJÓRA „Yfirleitt er ég kominn á fætur í kringum sexleytið, ef mér tekst að sofa svo lengi. Ég fæ oft mjög góðar hugmyndir eldsnemma á morgnana. Fer þá gjarnan á fætur til skrifa þær niður og fer svo aftur upp í rúm,“ segir Halldór J. Kristjánsson bankastjóri Landsbank- ans. „Ég byrja hvern morgun á því að lesa íslensku blöðin og tölvuyfirlit fjármálafrétta og breskra fjölmiðla. Á meðan ég les blöðin fæ ég mér heitt sítrónuvatn sem ég mæli mjög með. Svo færi ég eiginkonunni slíkan drykk og skelli mér í sturtu. Morgunmaturinn er ávaxtablanda og hafragrautur, en fyrsta verkefni dagsins er að keyra dótturina í Versl- unarskólann.“ Vel nýttir vinnudagar Halldóri nýtist vel að vinna milli sex og sjö á morgnana og kýs frekar að hafa fundi snemma á morgnana en seint á daginn. Ef hann á ekki fund þegar hann kemur fyrst í bankann að morgni notar hann tímann til að renna yfir tölvupóst, hringja símtöl og ráðfæra sig við menn. Dagarnir fara svo að miklu leyti í fundahöld með samstarsfólki og viðskipta- vinum bankans. „Mér finnst gott að eiga lokahluta vinnudags milli sex og átta fyrir sjálfan mig á skrifstofunni einn eða með fáum traustum samstarfsmönnum. Á þessum tíma gefst einnig stundum tækifæri til að fara yfir daginn með bankaráðsformanni og kollega mínum Sigurjóni.“ Þar sem fátt er um lausar stundir í bank- anum tekur Halldór gjarnan törn í að svara tölvupósti heima á kvöldin. „Ég er tarna- maður í að svara tölvupósti. Magn tölvupósts er gífurlegt og það lendir oft á ritara mínum að flokka póstinn eftir mikilvægi,“ segir Hall- dór sem segir marga hafa farsímanúmerið sitt. Sjálfur kjósi hann þó að afgreiða eins mörg mál og unnt sé með tölvupóstsam- skiptum. Að loknum vinnudegi fer hann svo gjarnan í stafgöngu eða sund hvar hann fær oft góðar hugmyndir. Lesið í flugvélinni Landsbankinn er með starfsstöðvar í tólf löndum. Af þeim sökum eru ferðalög tíma- frekur þáttur í starfinu. Á ferðalögum gefst Halldóri tími til þess að lesa yfir skjöl og skýrslur en hann segist leyfa sér að taka með góða bók ef hann er í löngu flugi til þess að tæma hugann og hvílast fyrir næstu átök. „Ég er því að meðaltali tvisvar í mánuði erlendis. Þegar ferðir eru á dagskrá reyni ég að vera mest tvær nætur í burtu og oftast síðustu daga vikunnar. Ég er mjög heimakær og sakna fjölskyldunnar ef fjarvera er lengri. Stundum komast þau með og þá verður ferðin lengri,“ segir hann. „Hádegishlé er eitthvað sem ég tók síðast á námsárunum,“ segir Halldór og bætir við að oft missi hann af máltíðum í amstri dags- ins. „Fastir þættir eru morgunmaturinn og kvöldmaturinn sem getur dregist töluvert. Ég er hins vegar mjög duglegur að borða holla fæðu. Borða mest ávexti og grænmeti þessa dagana og þær eru ófáar appelsínurnar sem ég hef skrælt um ævina,“ segir hann. HALLDÓR J. KRISTJÁNSSON Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands. Hugmyndaríkur í morgunsárið „Ég borða mest ávexti og grænmeti þessa dagana.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.