Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
„Ég er nú frekar það sem kalla má kvöld-
maður og síðari hluti dags nýtist mér best til
vinnu. Á skrifstofunni er ég gjarnan fram á
áttunda tímann á kvöldin og eftir það er ég
gjarnan að vinna heima. Fjölskyldan er ekki
óvön að ég sitji heima með fartölvuna í fang-
inu við að sinna hinum og þessum erindum.
Ég fæ 50 til 70 tölvubréf yfir daginn og helm-
ingur þeirra kallar á að ég svari þeim með
einhverjum hætti,“ segir Jón Karl Ólafsson,
forstjóri Icelandair.
Sá á fund sem finnur
„Yfirleitt vakna ég um klukkan sjö á morgn-
ana. Fyrstu verk dagsins eru sturta, rakstur
og svo hita ég mér kaffi. Sterkt, svart, syk-
urlaust kaffi er upphafið á deginum. Það er
ómissandi að horfa á eina teiknimynd með
syninum áður en ég fer til vinnu á níunda tím-
anum. Ég kveiki yfirleitt ekki á tölvunni fyrr,“
segir Jón Karl og segist athuga íslensku vef-
ina Visir.is, Mbl.is og vefsíður, íslenskar og
erlendar, með fréttum úr fjármálaheiminum
og ferðaþjónustunni. Einnig athugar hann
bókunarstöðuna, hvort flugvélar dagsins eru á
áætlun og ýmislegt annað sem tengist rekstr-
inum. Forstjórinn hefur puttann á púlsinum!
Tímann eftir hádegi segist Jón Karl
gjarnan nota til að afgreiða ýmis tilfallandi
símtöl. „Milli klukkan tíu til tólf á morgnana
eru nær undantekningalaust fundir. Stunda-
taflan hjá mér er þéttsetin af alls konar
fundum - stórum og smáum. Við segjum
oft í gríni að „sá eigi fund sem
finni“. Við erum með átak í gangi
til að draga aðeins úr fundar-
setum, þar sem þessir
fundir skila oft ekki
því sem vænst
er. Nýlega gerðum við þær breytingar á skrif-
stofu Icelandair að við tókum niður skilrúm
og fækkuðum litlum skrifstofum, en tókum
upp opin vinnurými. Þetta var meðal annars
gert til þess að styrkja liðsheildina og ég
vona jafnframt að þetta leiði til þess að fólk
beri meira saman bækur sína í dagsins önn
og að slíkt komi í stað formlegra funda. Af
þvílíku væri mikill tímasparnaður.“
Köben varla utanlandsferð
Jón Karl segir að hádegisverður sinn sé oft
ekki annað en ein samloka. „Ætli ég sé ekki
að borða svona tvisvar til þrisvar yfir daginn,
sem er líklega of sjaldan ef eitthvað er. Síðan
borða ég oftast of mikið á kvöldin,“ segir Jón
Karl. Síðdegis tvisvar í viku er frátekin stund
og þá spilar hann skvass með nokkrum
félaga sinna eins og þeir hafa gert um langa
hríð. Stöku sinnum bætir hann svo því við að
fara í ræktina áður en haldið er til vinnu, en á
því sé engin regla.
Svo sem vænta má hjá forstjóra í stóru
flugfélagi sem starfar á alþjóðlegum mörk-
uðum, eru ferðalög erlendis stór þáttur í
starfinu. „Mér finnst skila mestu að fara fyrri
hluta vikunnar. Það er manni nokkuð í sjálfs-
vald sett hve ferðirnar eru tíðar. Stundum eru
þetta ein til tvær ferðir í viku en það kemur
einnig fyrir að ferðirnar séu ekki nema ein til
tvær í mánuði. Flestar ferðirnar eru til London
og Kaupmannahafnar. Það má reyndar deila
um hvort ferð til Köben sé yfirhöfuð talin til
utanlandsferða, svo sterk eru tengsl okkar
við borgina við Sundið.“
Sterkt, svart og sykurlaust
JÓN KARL ÓLAFSSON
Jón Karl Ólafsson,
forstjóri Icelandair
„Fjölskyldan er ekki
óvön að ég sitji
heima með fartölv-
una í fanginu við að
sinna hinum og þess-
um erindum.“
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA