Frjáls verslun - 01.03.2006, Qupperneq 38
38 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
31. mars
Landsbankinn í
Amsterdam
Landsbanki Íslands hefur tilkynnt
Fjármálaeftirlitinu ákvörðun bank-
ans um stofnun útibús í Amster-
dam í Hollandi. Þetta kemur til
af stórauknum umsvifum bank-
ans í lánveitingum og annarri
fjármálaþjónustu í Evrópu und-
anfarin ár. Starfsemi útibúsins
mun einnig falla vel að starfsemi
Kepler Equities sem staðsett er
á sama stað.
Útibúið mun heyra undir Fyrir-
tækjasvið Landsbankans. Robert
Verwoerd og Sebastian T.W.
Stoetzer munu stýra útibúinu
en þeir hafa undanfarin sex ár
starfað við útibú Halifax Bank
of Scotland í Amsterdam og átt
virkan þátt í uppbyggingu starf-
semi þess útibús.
1. apríl
Dagsbrún
stofnar Sko
Þennan dag var tilkynnt að
Dagsbrún, sem m.a. rekur Og
Vodafone og 365 miðla, hefði
stofnað nýtt farsímafyrirtæki sem
nefndist Sko.
Hinu nýja far-
símafyrirtæki
er ætlað að
keppa við
Og Vodafone
og Símann
með því að
bjóða ein-
faldari verðskrá og lægra verð á
farsímaþjónustu en þekkst hefur
hér á landi. Liv Bergþórsdóttir
er framkvæmdastjóri Sko. Auk
fyrrnefndra fyrirtækja á Dags-
brún öryggisfyrirtækið Securitas,
afþreyingarfyrirtækið Senu og
Skoðun sem keypti 51% í Kögun
og hefur gert yfirtökutilboð í það
fyrirtæki. Þá á Dagsbrún danska
fjölmiðlafyrirtækið 365 Media
Scandinavia a/s.
2. apríl
Baugur ber
víurnar í Matas
Það eru fleiri en Baugur Group
sem bera víurnar í dönsku snyrti-
vöruverslunarkeðjuna Matas.
Margir hafa lýst yfir áhuga á
keðjunni og hefur meirihluti eig-
enda hennar samþykkt að selja
ef viðunandi tilboð fæst. Líklegt
kaupverð er talið í kringum 48
milljarða króna, eða 4 milljarða
danskra króna. Matas-keðjan var
stofnuð árið 1949 og veltir um
30 milljörðum íslenskra króna
ári. Fjöldi Matas-verslana er 291
talsins.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
yfirmaður norrænna fjárfestinga
Baugs.
3. apríl
Svenn Dam
forstjóri 365 Media
Scandinavia
Dagsbrún hefur skipað Svenn
Dam forstjóra og varastjórnarfor-
mann 365 Media Scandinavia.
Hann hefur starfað í fjölmiðlum
til margra ára og hefur reynslu
af stjórnun fyrirtækja, eins
og Jyllandsposten og Metro
International. Fyrsta verkefni
hans verður að koma á fót frí-
blaði í Danmörku í líkingu við
Fréttablaðið hér heima en jafn-
framt er honum ætlað að standa
vaktina og kanna ný viðskipta-
tækifæri á sviði fjölmiðlunar á
Norðurlöndunum.
3. apríl
Skipst á Visa
og Euro
Þennan dag var sagt frá því að
Glitnir hefði keypt 16% hlut í
Kreditkorti af Kaupþingi banka
og við það eignast meirihluta
í Kreditkorti. Samhliða þessu
seldi Glitnir Kaupþingi banka
18,45% hlut í Greiðslumiðlun hf.
og þar með er Kaupþing banki
orðin stærsti einstaki hluthafinn
í Greiðslumiðlun. Glitnir og Kaup-
þing banki munu áfram bjóða
greiðslukort frá báðum greiðslu-
kortafyrirtækjunum.
4. apríl
Baugsmál:
Ný ákæra
Sigurður Tómas Magnússon,
settur saksóknari í Baugsmálinu,
hefur gefið út nýja ákæru í Baugs-
málinu í fimm köflum. Þetta eru
19 af þeim 32 ákæruliðum sem
Hæstiréttur vísaði frá dómi í októ-
ber. Þrír eru núna ákærðir, þar af
Jón Gerald Sullenberger. Ákæran
verður þingfest 27. apríl.
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, og Tryggvi Jónsson,
fyrrum aðstoðarforstjóri félagsins,
eru ákærðir fyrir fjársvik, brot
gegn hlutafélagalögum, meiri
háttar bókhaldsbrot og fjárdrátt.
Jón Gerald Sullenberger, fram-
kvæmdastjóri Nordica Inc., er
ákærður fyrir aðild að bókhalds-
broti með því að gefa út tilhæfu-
lausan kreditreikning.
Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson
hafa lýst yfir sakleysi sínu og
hafa jafnframt ákveðið að leita
réttar síns fyrir Mannréttinda-
dómstóli Evrópu og kemur fram
í yfirlýsingu Baugs Group að þeir
njóti til þess stuðnings stjórnar
félagsins.
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Landsbankinn ætlar að opna útibú í Amsterdam.
Liv Bergþórs-
dóttir.