Frjáls verslun - 01.03.2006, Side 111
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 111
Skipulag Búmannahverfis í Reykjanesbæ.
Guðrún Jónsdóttir arkitekt skipulagði hverfið.
ins byggingarflokks ganga þeir fyrir sem búa þar fyrir. Að
sögn Daníels kemur fyrir að fólk vill minnka eða stækka
við sig af einhverjum ástæðum og þyki eðlilegt að þeir
sem búa á staðnum hafi forgang fram yfir aðra, losni þar
húsnæði.
Tengsl við elliheimilið
Þess má geta að í Grindavík er verið að reisa Búmannahús
í nánd við elliheimilið. Þar verður aldursákvæðið 60 ár,
enda munu menn geta sótt þjónustu til heimilisins, ger-
ist þess þörf. Í Vogunum verður sérhannað húsnæði sem
Búmenn kalla stórheimili. Um er að ræða þrjár húsaraðir
með misstórum íbúðum, allt niður í litlar stúdíóíbúðir.
Einnig rís þarna þjónustumiðstöð sem bæjarfélagið ætlar
að leigja af Búmönnum og þangað getur fólk sótt ýmsa
þjónustu. Gert er ráð fyrir að stúdíóíbúðirnar verði fyrst
og fremst fyrir 60-70 ára ellilífeyrisþega og þar geti menn
búið þótt þeir þurfi mikla aðstoð. Íbúðirnar eru hannaðar
með það í huga að hægt sé að aðstoða fólk við að komast
í bað og lyfta því upp í rúm. Guðrún Jónsdóttir arkitekt
hefur hannað Búmannakjarnann í Vogunum.
„Þeir sem leita sér að Búmannahúsnæði eru gjarnan að
sækjast eftir rólegu samfélagi þar sem aldurssamsetningin
er nokkuð jöfn. Margir hafa notfært sér þennan valkost
þegar aldur færist yfir til þess að flytjast milli landshluta,
kannski aftur á æskuslóðir eða í námunda við börn sín,“
segir Daníel Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Búmanna
að lokum.
Hvernig má auka lífeyrinn á efri árum Margir þeirra
sem nú eru að komast á ellilífeyrisaldur eiga ekki von á
háum greiðslum úr lífeyrissjóðum. Hins vegar eiga þeir
ef til vill skuldlausar eignir, íbúðir eða einbýlishús. Með
því að selja húsnæðið og fjárfesta í ódýrara húsnæði er
hægt að bæta þónokkurri upphæð við lífeyrinn með
vaxtatekjum, og auðvitað væri líka hægt að ganga á
höfuðstólinn og hafa enn meira milli handanna.
Daníel Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Búmanna.
Selt og keypt
100 fm Búmannaíbúð með bílskýli kostaði 22 milljónir
sumarið 2004
Greitt búseturéttargjald var 15%= 3,3 milljónir kr.
Mánaðargjald í febrúar 80.100.00 kr. Hefði þessi
Búmaður selt íbúð sína á sama tíma á 30 milljónir
hefði hann átt eftir 26,7 milljónir króna.
Sé reiknað með að upphæðin væri óbreytt í dag, 26,7
milljónir, og ávöxtuð á 60+ reikningi í Landsbankanum
sem er með 10,4% vöxtum miðað við 1. apríl væru
vextir 2,776,800 kr. Frá því verður að draga 10% fjár-
magnstekjuskatt, þ.e. 277.680 kr. Eftirstöðvar vaxtanna
eru 2,499.120. Þá er að lokum komið að því að draga
mánaðargjöldin, 961.200, frá vaxtatekjunum og útkoman
verður 1.537.920. Þetta eru eftirstöðvar af vaxtatekjum
sem bætast við höfuðstólinn sem ekki þyrfti að hreyfa.
Þessar eftirstöðvar gætu bæst við lífeyrisgreiðslur á
hverjum mánuði, sem svarar til 128.160 kr. á mánuði.
Skattfrjálst!