Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 9
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
103
skírskotunum í veizlu fröken Parsberg, hneykslaðir yfir Jjví að Paul Lange
skuli hafa látið kónginn múta sér til að mæla með „óáreiðanlegum“ stjórn-
málamanni. Og einhvernveginn finnst manni að Paul Lange mundi hafa skotið
sig hvort eð var, af því hann hafði sjálfmorðsbakteríuna í sér. En það skipt-
ir í raun og veru litlu, hvort leikurinn er um geðbilunartilfelli eða á að heita
lausn á siðferðisvandamáli. Spenna leiksins myndast af því, hyernig liin
sterka heilbrigða kona bak við allt gervið elskar þennan mann, Paul Lange,
á þeirri stund sem hann er í raun réttri banvænn sjúklingur og sérhver lífs-
hræring hans blandin feigð. Allar hinar skreyttu forhliðar opinbers lífs eru
hrundar í lokin, og kona berst við að bjarga elskuðu lífi. En honum verður
ekki bjargað, hann er veikur, hann lætur bugast gagnvart umhverfinu, en þó
fyrst og fremst sjálfum sér, konan tekur fram lífstein sinn og reynir að bera
að undum hans, gerir með hætti ástarinnar kröm hans að sinni, — en bíður
ósigur.
H. K. L.
Myndir Gunnlaugs 0. Schcvings, sem birtast hér í heftinu, voru gerðar fyrir
sögusýningu lýðveldisins, en höfundi og sýningamefnd kom ekki saman um
stað fyrir myndirnar á sýningunni, svo að listamaðurinn tók þann kost að
sýna þær ekki. Þessar myndir voru eflaust meðal hins bezta, sem gert var
fyrir sögusýninguna. Því miður er ekki hægt að birta þær í litum.