Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 15
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
109
Er hátíðin rann upp og gengið var til Lögbergs, var sem í hóp þess-
ara þúsunda væru auk þess komnar til móts liðnar kynslóðir Islend-
inga, er heitast höfðu þráð þennan dag. Skyggnt auga skáldsins sér
þar hetjuna Jón Arason og Jónas Hallgrimsson ljúflingsskáldið, er
Þingvelli og frelsið og Island elskaði. Hér greinum vér ekki lengur
milli liðinna og lifenda. Allar kynslóðir íslendinga eru á þessum
degi ein lífsheild, saga þjóðarinnar öll kristölluð í þeirri stund, er nú
rennur upp, þegar lýst er yfir því frá Lögbergi, að ísland sé aftur
frjálst. Og skáldið, er enn stendur við Óxará, heyrir klukku þjóðar-
innar klingja að nýju kátt og fast, alskærum ómi:
Mín klukka, klukkan þín
kallar oss heim til sín.
Allir fundu helgi þessarar stundar. Þúsundirnar stóðu að Lög-
bergi, viku eigi fyrir regni né stormi, hrærðar djúpri skynjun, sam-
stilltar í þögn og söng. Menn vildu njóta alls, sem fram fór, festa í
minni, geyma og láta ganga til næstu kynslóða áhrif þessa atburðar.
Allir vissu, að þeir lifðu nú dýrlegustu stund í sögu íslands.
Svo varð að veruleik endurreisn lýðveldis á Islandi. Öll þjóðin,
hvert mannsbarn á Islandi, tók þátt í þessum atburði. Þeir, sem ekki
gátu komizt á Þingvelli, fylgdust með athöfninni þar gegnum útvarp.
Ut um allar byggðir landsins voru hátíðahöld. Á Rafnseyri, fæðing-
arstað Jóns Sigurðssonar, var efnt til sérstakrar viðhafnar. í Reykja-
vík voru hátíðahöld og skrúðgöngur daginn eftir, 18. júní, og hafði
þvílíkur mannsöfnuður aldrei sést á götum höfuðstaðarins. Hin lit-
skrúðuga, glaðværa, iðandi mergð barna á Stjórnarráðstúninu og
umhverfis minnisvarða Hannesar Hafsteins var ógleymanleg sjón.
Mundi eigi lýðveldi íslands tryggt í þeirra forsjá.
Það, sem fyllir mann sérstökum fögnuði við þennan sögulega at-
burð, er hin almenna þátttaka þjóðarinnar og áhugi hennar. Sú
vakning þjóðarinnar hlýtur á næstunni að bera margfaldan ávöxt.
Það er nýr þytur í lofti yfir ströndum og byggðum íslands. Þjóðin
veit, að hún lifir tímamót. Hún vill gera allt til að gera þau tímamót
sem söguríkust. Hún vill glæða nýtt líf í landi, græða öll gömul sár.
Hún vill láta hvarvetna sjá merki þess, að nú er hún frjáls þjóð. Hún
fagnar hverri góðri hugmynd, sem kemur upp, því að nú vill hún