Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 48

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 48
142 TIMARIT MALS OG MENNINGAR hver um sig hefur að jafnaði inni að halda hundruð þúsunda af stjörnum. Stjarnþyrpingar þessar eru hér um bil sjötíu að tölu. Loks eru stjörnur þær, sem sýnast í fljótu bragði vera einar síns liðs, þó að nánari athugun leiði raunar í ljós, að þær skipast einnig oft og tíðum í hópa og verða þannig samferða á leið sinni um geim- inn. Yfirleitt gæti svo virzt sem vetrarbrautin, að frátöldum eim- þokunum, væri ekki annað en safn stjarnþyrpinga, sem sumar eru að vísu ákaflega stórar og mjög lausar í böndunum, en aðrar þétt- ari í sér og fastmótaðri. Oft er það, að þar sem stjarna virðist standa stök á himni, reyn- ast við nánari athugun vera tvær, þrjár eða jafnvel fleiri stjörnur mjög nátengdar. Þetta nefnast tvístirni, þrístirni o. s. frv. Mönnum hefur talizt svo til, að tvístirni muni eigi vera öllu færri í geimnum en einstirni. Sé þetta rétt, hafa likurnar til þess, að sólin yrði ein- stirni, og hins, að hún kæmi fram sem tvístirni, verið nákvæmlega jafnmiklar, áður en hún mótaðist úr frumþoku sinni einhverntíma í fyrndinni. Þó að sólstjörnurnar séu yfirleitt nokkuð svipaðar að þyngd, eru þær mjög tilbreytilegar að Ijósmagni, lit, hitastigi, stærð og ýmsum öðrum eiginleikum. Plánetur eða reikistjörnur eru næsti flokkur þeirra hluta, er sjást á himni. Því miður er engin fjarsjá svo öflug, að unnt sé að greina í henni plánetur utan sólkerfis vors. Þar eð plánetur sólarinnar eru hinar einu, sem vér þekkjum til, vitum vér að ýmsu leyti minna um þennan flokk himintungla en aðra, þó að vitneskja vor um hann sé liins vegar fullkomnari í sum- um greinum. Vér höfum engin tök á. að auka við þekkingu vora með samanburði á plánetum vorrar sólar og annarra sólstjarna. En vegna þess, hve heimaplánetur vorar eru nálægar, er þekking vor á þeim um margt tiltölulega nákvæm og ítarleg. Pláneturnar reika kringum sólina allar í sömu stefnu og því nær í sama fleti. Þessi og ýmis annar regluleiki bendir til þess, að þær hafi allar myndazt á svipaðan hátt og um sama leyti. Pláneturnar eru níu að tölu. Næst sólu er Merkúríus, þá Venus og þriðja jörðin. Næst fyrir utan jörðina er Marz, þá Júpíter, þá Satúrnus, þá Úranus, þá Neptúnus og loks Plútó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.