Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 26
120
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
deild, draugasagnadeild, danslagadeild, andlitsmálverkadeild o. s.
frv. og setti þar yfir forstjóra með takmörkuðum skilningi, en næg-
um myndugleik til að stjórna liststarfseminni í deildunum og segja
mönnum í aðalatriðum, hvað þeir eigi að yrkja, semja eða mála, og
hvernig, þá býst ég að vísu við, að þessi hugmynd mundi heilla
vissa tegund manna, einkum ef þeir mættu sjálfir velja menn til
framkvæmdanna. Hinsvegar mundi tæplega koma list, sem það nafn
verðskuldaði, frá slíkri stofnun, og þarf ekki að skýra það nánar.
Það er vandalaust að gera hliðstæða regin-skyssu í skipulagn-
ingu vísindastarfseminnar.
Það má vel hugsa sér, að öll vísindaleg vinna í landinu sé keyrð
í eitt herjans skipulagsbákn, þar sem öllum sé sagt fyrir verkum af
einhverjum, sem ekki þekkir það, sem hann er að tala um, og enginn
ber þess vegna lengur ábyrgð á sjálfum sér.
Ekki er grunlaust um, að þvílíkar hugmyndir eigi hjá sumum
mönnum rót sína í óljósum kvíða um, að þeir menn, sem til starf-
anna verða valdir, verði ekki verki sínu vaxnir og þurfi þess vegna
„aðhald“. Slíkum mönnum bjargar ekkert aðhald, allra sízt frá
þeim, sem eru þeim ennþá ófróðari.
Grundvallarskilyrði til þess að fá menn, sem verði starfanum
vaxnir, er einmitt, að þeim sé boðin aðstaða, sem gerir kröfu til
getu þeirra og lætur hana njóta sín, en þeir eiga síðar sjálfir
skömmina eða heiðurinn, eftir því sem þeir duga til.
Þegar ákveðið er skipulag slíkra framkvæmda, á að gæta þess
að tengja það saman, sem er að eðli til skylt. Menn með svipaða
menntun og æfingu eru hver öðrum ómetanlegur styrkur í sam-
vinnu. Hinsvegar má ekki slengja saman undir einum „stjóra“ ó-
skyldum greinum, sem ekki eiga saman. Fáir „stjórar“ mundu til
lengdar standast þá freistingu að fara að stjórna framkvæmdun-
um, jafnvel þótt þá brysti þekkingu tiL
Rúmið leyfir ekki, að rætt sé ýtarlega um einstakar greinir rann-
sóknastarfseminnar og hentug form þeirra. Hver einstök grein,
svo sem jarðræktarrannsóknir, húfj árræktarrannsóknir, sjúkdóma-
rannsóknir, fiskirannsóknir, fiskiðnaðarrannsóknir, síldariðnaðar-
rannsóknir o. s. frv. þurfa að vera annaðhvort sjálfstæðar deildir
eða sjálfstæðar stofnanir eftir því, hvernig hagar til í hverju efni