Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 53

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 53
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 147 mann við svo sérkennilegan ástaróð, þótt maður sé barn að aldri. Og maður horfir á hann þar sem liann sveiflar vængjunum, hátt í lofti, og það er augljóst hverjum, sem horfir á þetta og heyrir hinar fjaðrandi trillur, að án þessa fugls er ekkert vor. En þetta var samt sem áður kalt vor, eflaust ís fyrir norðurströnd landsins, nema litli drengurinn gat ekki verið úti. Sem sé: Ég varð að gæta hans inni í bæ. Þetta var snemma vors og ofurlítið rökkur seig yfir landið með kvöldinu. En ég var inni í bæ og gætti litla drengsins, nema hvað ég stöku sinnum fór út til að sækja í eldinn, eða því um líkt. En hafi ég ætlað í sveit til þess að gæta barns, þá hef ég misskilið sjálfan mig. Hitt er annað mál, að þetta var fallegt barn. Ég leik mér við hann í slóru herbergi, þar sem glugg- arnir vita í suður og vestur. Ég leik mér við hann þannig, að ég fæ honum allskyns dót í hendur og sýni honum, hvernig hægt sé að leika sér að því. Þá sezt ég á rúm, sem er í herberginu. Síðan segi ég við hann: Vertu nú þægur. En ef það er ekki rigning og slabb úti; ef golan þýtur um girð- ingarstaurana á þurru hlaðinu og skýin sigla hratt um himingeim- inn, þá stend ég upp og geng að glugganum, sem veit í suður, eða þeim, sem.snýr í vestur, og horfi út. En fyrir utan þann glugga sem snýr í vestur er pínulítill hóll og grágrýtissteinn á honum miðj- um. Spói nokkur, sérfræðingur í skemmtilegheitum, hefur vanið komur sínar á þennan stein. Ég er vinur hans. Og þess vegna er liann vinur minn. Að minnsta kosti er það óskiljanlegt, nema guði einum, til hvers hann venur komur sínar á þennan stein, frekar öðr- urn og blístrar sín skemmtilegu lög, sem öll hafa hinn sama frum- lega hérumbil yfirnáttúrlega blæ, eins og ætíð hjá miklum tón- skáldum. Til hvers annars en skemmta mér. Því að hann veit, að ég er músíkalskur. En hvort sný ég baki að litla drengnum? Músík litla drengsins er öðruvísi en fuglsins. Hann opnar munn- inn og rekur upp öskur, slíkt sem þætti brútalt, jafnvel í grófustu jasshljómsveit einhverrar næturkrárinnar í stórborg. Sem sé: Barn- ið hefur kúkað á sig. Þá opna ég dyrnar og kalla til húsmóður minnar: Hann er búinn að gera í buxurnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.