Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 42
136
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
lista. Beztu skáldunum eigum vér að gera alla vegi færa, þeir ættu
að hafa hæstar tekjur allra hér á landi. Þeir eiga að vera sjáendur
vorir og geta ferðazt um allan heim, borið áhrifin heim, lyft þjóð-
inni og gefið henni fegurri og víðari útsýn. Þeir eiga um allar aldir
að vera Væringjar íslands. í flokki með þeim eiga aðrir listamenn
að fara í hinum nýju listgreinum vorum. Vér þurfum að fara að
hugsa um fagrar byggingar, skreyta með myndlist bæi og stofn-
anir, ekki sízt í höfuðborg hins nýja lýðveldis. Vér þurfum að fegra
og auðga líf vort með ástundun tónlistar og koma upp góðri leik-
listarstarfsemi í landinu.
Allt, sem lýtur að skemmtunum, fegurð og heilbrigði, þarf að
eignast nýtt inntak og nýjan skilning þjóðarinnar. Hið opinbera,
ásamt hverskonar félagssamtökum í landinu, verður að koma upp
hressingarheimilum og dvalarstöðum fyrir hina starfandi þjóð,
verkamenn, sjómenn, sveitaalþýðu, iðnaðarmenn, verzlunarfólk, úti
í hinni fögru náttúru íslands. En sérstaklega verður að vera á dag-
skrá framtíðarinnar að gera hjartastað þjóðarinnar, fegursta stað
landsins, Þingvelli, að unaðslegu sumardvalarheimili fyrir Islend-
inga.
Ég hef hér í lauslegum dráttum vakið athygli á ýmsu, sem vér
eigum að snúa kröftum vorum að á næstunni. Hér er ekki um neina
draumóra að ræða. Vér getum unnið meiri afrek, en vér látum oss
dreyma um, ef vér beitum viti, hugdirfsku og framtakssemi til að
hagnýta oss auð og starfskrafta þjóðfélagsins, hættum fálmi og ráð-
leysu, hinni réttnefndu stafkarlapólitík, sem rekin er, með tilheyr-
andi sparnaðarskvaldri, barlómi og fátæktarrausi, en beitum í þess
stað vísindalegum og skipulagslegum vinnuaðferðum við allan
rekstur þjóðarbúsins.
Þingvöllum, 4.—7. júlí.