Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Side 13

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Side 13
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 107 skap fyrri alda kynslóða, liinn sterka lífsmátt, er í þjóðinni bjó, og stóðst allt. Með augun á því, sem liðið er, og jafnframt örlögum þeirra kyn- slóða, sem byggja eiga landið eftir oss, og skilningi á því, hve harð- sótt reynist þjóðurn að vinna frelsið, urðum vér Islendingar, hverj- ar sem voru í svip aðstæður annarra þjóða og okkur skyldra, að grípa tækifærið, hið fyrsta, sem oss harst í hendur, til að taka oss rétt vorn, án hiks né óvarkárrar biðar. Á Alþingi íslendinga áttu líka þrír stærstu flokkarnir og, að því er ég bezt veit, þrír af sjö þing- mönnum minnsta flokksins, Alþýðuflokksins, þar óskipt mál, að þeir vildu livergi hvika frá rétti Islendinga og engan frest á formlegum sambandsslilum við Danmörku og stofnun lýðveldis. Alþingi hafði forustu í þessu máli, og vissi, að það hafði á bak við sig vilja þjóð- arinnar. Vegna hiklausrar og jafn eindreginnar forustu Alþingis er stofnun lýðveldisins svo farsællega til lykta leidd. Ég tek þetta ekki fram af því, að mér sé ekki Ijóst, að Alþingi gerði hér aðeins skyldu sína gagnvart þjóðinni, heldur af hinu, hve tilefnislaus áróður hefur verið rekinn gegn Alþingi í sjálfstæðismálinu, þar sem það þó vissu- lega ber óflekkaðan skjöld. Jafnvel þær urðu lyktir málsins á Al- þingi, að allir þingmenn stóðu saman jafnt um uppsögn sambands- lagasamningsins og lýðveldisstofnunina. Þessi einhugur Alþingis varð einmitt til að tryggja algeran einhug þjóðarinnar. Þjóðaratkvæðagreiðslan dagana 20.—23. maí varð glæsilegur vitnisburður um árvekni Islendinga. Margir höfðu sérstaklega óttast um skilning ungu kynslóðarinnar, er ekki liafði reynslu sjálfstæðis- baráttunnar fyrir 1918. En þeir Islendingar reyndust ekki vera til, hvorki ungir né gamlir, hvorki í bæjum né sveitum, er brysti skiln- ing á því, að þjóðaratkvæðagreiðslan varðaði heiður, frelsi og framtíð Islands. Þjóðaratkvæðagreiðslan varð stórsigur fyrir ís- lenzku þjóðina, birti svo ákveðinn vilja hennar, að slíkum dómi varð að lúta, enda er til þessa vitnað af ríkissljórnum annarra þjóða. Hve gaman var að þeim einhug, er kom fram við atkvæðagreiðsluna. Hver sýsla keppti við aðra, hver hreppur við annan, hver bær við hinn. Og að lokum varð naumast gert upp á milli, hver bezt hafði staðið sig, því að hver staður náði í rauninni hámarki. Menn af öll- um flokkum unnu saman, allir jafn heitir af áhuga. 011 flokkagrein-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.