Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Page 14
108
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ing gleymdist þessa dagana. Þjóðin átti einn áhuga, einn vilja, eina
sál. Því varð sigurinn alger.
Anægja var að koma til Alþingis 10. júní, er það var kvatt saman
eítir þjóðaratkvæðagreiðsluna, og eiga að taka þátt í að samþykkja
lýðveldisstofnunina, eftir þann einhug, sem fram hafði komið hjá
þjóðinni. Undirbúningur þjóðhátíðarinnar stóð þá sem hæst, hjá öll-
um ríkti hátíðarskap, eftirvænting og fögnuður. Það var sem múrar
hefðu hrunið milli stétta og einstaklinga. I fyrsta sinn í mörg ár
leit hver annan glaðlega og tortryggnislaust. Allir voru að búa sig
undir sama fagnað. Hve hátíðleg var sú stund á Alþingi, 16. júní,
er lýðveldisstjórnarskráin var til síðari umræðu. Þingmenn allir
(nema einn, sem var veikurl voru setztir stundvíslega í sæti, allir
með íslenzka fána á borðum fyrir framan sig. Aðeins stutt yfirlýsing
var lesin upp af forsætisráðherra um úrslit þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar, og har síðan forseti sameinaðs Alþingis málið undir atkvæði
þingmanna, án þess nokkur þeirra kveddi sér hljóðs, allir voru hvort
eð er sannnála. Þingmenn greiddu atkvæði með nafnakalli: sam-
hljóða já af vörum allra. Eining Alþingis eins og þjóðarinnar var
fullkomin. Er ég renni huganum til þessa hátíðlega viðburðar á Al-
þingi, finnst mér, að atkvæðagreiðsla Jringmanna hefði átt að fara
fram 17. júní að Lögbergi frannni fyrir Jjjóðinni, en vera ekki að-
eins lesin þar yfirlýsing um úrslit þessarar atkvæðagreiðslu. Þá hefði
Jjjóðin orðið áheyrandi þess einhugar, sem ríkti á Alþingi, fengið að
heyra hvern þingmann, einn af öðrum, segja já við lýðveldi íslands.
Þá hefði enginn verið Jiað barn að láta sér mislíka, þótt atkvæði
greindust á eftir um forsetakjörið. Frá sjónarmiði Jjingmanna var
sú kosning aukaatriði, samjrykkt stjórnarskrárinnar vitanlega aðal-
atriðið, enda forsetakosningin fyrir fram ákveðin með samkomulagi
meirihluta þingmanna.
Hinnar hátíðlegu stmidar á Alþingi 16. júní fór þjóðin Jjví miður
á mis. Allra hugur snerist þá um 17. júní, þjóðhátíðardaginn sjálf-
an, þegar stjórnarskrá lýðveldisins skyldi taka gildi, og það á sjálf-
um Þingvöllum, hinum Jjjóðhelga stað lýðveldisins forna. Geysileg-
ur fjöldi fólks streymdi til Þingvalla, og gaf þar að líta mikla tjald-
borg. Er talið, að 17. júní muni þar hafa verið saman komnar allt að
því tuttugu og finnn þús. rnanna, eða fimmti hluti allrar þjóðarinnar.