Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Page 24

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Page 24
118 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR um, hve fáir vér erum og skammt á veg komnir í mörgum efnum. Það er því mikil nauðsyn, að vér athugum vandlega, hvaða fyrir- komulag muni henta oss bezt, svo að mistök í því efni verði ekki til að draga úr mönnum kjark og tefja nauðsynlegar framfarir. í fyrsta lagi er þess að gæta, að hér rísa tæplega upp iðnfyrirtæki, sem hafi sjálf bolmagn til að hefja vísindalega vinnu í verulegum stíl, enda hefur það fyrirkomulag ýmsa annmarka, eins og áður var sýnt. Það væri t. d. varhugavert, ef nýjum aðferðum við meðferð fisk- eða síldarafurða væri haldið leyndum eða þær takmarkaðar með einkaleyfum við eitt fyrirtæki, þegar öllum iðnaði vorum gætu kom- ið þær að liði. Hér verður því tæplega um annað að ræða en háskólinn eða rik- ið standi undir þeim framkvæmdum, sem gerðar verða: Af háskólans hálfu virðist þess tæplega að vænta, eins og nú standa sakir, að hann óski eftir að hafa afskipti af eða forgöngu um náttúruvísindalega vinnu í landinu. Skömmu eftir að Rannsókn- arstofa Háskólans var stofnuð og komin myndarlega á rekspöl und- ir stjórn Níels Dungals, var hún losuð úr tengslum við háskólann, og er ekki annað kunnugt en það hafi verið háskólanum sársauka- laust. Fyrir nokkrum árum bauðst háskólanum óvenjulega glæsilegur liðsmaður, sem var þá þegar vel þekktur annarsstaðar en á íslandi fyrir ágæta vísindalega vinnu í líffærafræði. Honum hafði verið ætlaður kennarastóll hér við læknadeildina, en þar eð hann átti ekki kóst á sæmilegúm skilyrðum til vísindaiðkana sinna hér, hvarf hann af landi burt. Ekki er kunnugt, að háskólinn hafi lagt sig fram til að sjá honum fyrir starfsskilyrðum og tryggja oss þar með hina einstöku hæfileika hans. Skömmu síðar bauðst honum prófessors- staða við merkan erlendan háskóla, og var hann þar tekinn fram yfir ýmsa aðra. Fleiri dæmi mætti nefna, sem virðist benda til, að það muni ekki vera stefna háskólans að eiga þátt í vísindalegri vinnu að svo komnu máli, nema í 'íslenzkri málfræði og sögu. Má ef til vill skoða um- mæli rectoris magnifici í Stúdentablaðinu 17. júní s.I. sem stefnu- yfirlýsingu um þetta atriði, en þar segir: „Deild þessi (þ. e. heim- speki eða norrænudeild) á að sjálfsögðu að vera aðal vísindadeild

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.