Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Síða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Síða 28
122 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR stofnuninni aðra stjórn til að annast vísindalegu hliðina á rekstrin- um og gætu sumir mennirnir átt sæti í báðum stjórnum til sam- ræmingar. Svipað fyrirkomulag hefur gefizt ágætlega sumstaðar erlendis. Hvað sem öðru líður þá er hin mesta nauðsyn, að þegar í stað verði hafizt handa um auknar framkvæmdir í þessum efnum. Annað mál, sem ekki þolir langa bið, er rannsóknir á búfjár- sjúkdómum. Eins og stendur eru ekki skilyrði til nema mjög tak- markaðrar vinnu á því sviði. Er alkunnugt, hvílíka erfiðleika land- búnaðurinn á við að búa vegna sjúkdóma í sauðfé, hænsnum, kúm og svínum. Það er löngu viðurkennt af þingi og stjórn, að vinnu- skilyrði eru ekki fyrir hendi í þessari grein, og hefur því verið keypt jarðnæði í nágrenni Reykjavíkur til afnota fyrir starfsemina (Keldur í Mosfellssveit). Löggjöfin frá 1940, sem fjallar um þetta efni, er hinsvegar alls- endist óhæf, gerir m. a. ráð fyrir, að tilraunastarfsemin lúti stjórn manns, sem hefur ekki þekkingu í sjúkdómafræði (forstöðumaður landbúnaðardeildar atvinnudeildar). Ýmislegt fleira er þar mjög óhentugt og vanhugsað. Vegna þessarar slæmu löggjafar hefur ekki tekizt að hefja fyrir alvöru tilraunavinnu í búfjársjúkdómum og allt það fé, sem varið hefur verið til Keldna, liggur nú nær gagnslaust. Er þetta þeim mun hörmulegra sem full ástæða er til að ætla, að myndarleg hjálp hefði fengizt erlendis frá til að koma þessari starf- semi á laggirnar, ef vel tækist lil um undirbúning hér heima. Virðist einsætt, að við svo búið megi ekki lengur standa. Væri bænd- um ekki láandi, þótt þolinmæði þeirra yfir aðgerðaleysinu væri senn þrotin, enda bendir sumt til, að svo sé. Fleira mætti nefna. Nú er í fyrsta skipti völ á afbragðsvel meniit- uðum mönnum í jarðvegsefnafræði og plöntuerfðafræði. Það er höfuðnauðsyn fyrir fóðurframleiðslu vora og raunar alla ræktun í landinu, að þeir ráðist hingað og fái sem bezt starfsskilyrði. Við þessháttar rannsóknir eru tengdar miklar vonir um hentugri rækt- unaraðferðir og nýjar tegundir nytjagróðurs. Hafa uppgötvanir á þessum sviðum umskapað heilar atvinnugreinir víða erlendis. Þegar þess er gætt, að fóðurframleiðslan handa kúm, svínmn, hænsnum, sauðfé o. s. frv. er hið sígilda vandamál allrar kvikfjár- ræktar, ekki sízt hér hjá oss, sem búum við stutt og svöl sumur, er
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.