Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Qupperneq 47

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Qupperneq 47
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 141 Vor eigin þoka hagar sér þannig. Hún hefur bæði brautargöngu og möndulsnúning. Þetta hefur sannazt með athugun á hreyfingum stjarnanna innan vetrarbrautarinnar. Talið er, að hún muni fara eina umferð á svo sem 300 milljónum ára. Sólkerfi vort reynist vera í allverulegri fjarlægð frá miðdepli vetrarbrautarinnar. Stjörnuþokurnar hinar eru svo ákaflega fjarlægar, að torvelt mun verða að afla ítarlegrar vitneskju um innri gerð þeirra, fyrr en tekizt hefur að smíða fullkomnari fjarsjár en þær, sem nú eru til. En gera má ráð fyrir, að þær líkist yfirleitt vetrarbraut vorri, ým- ist eins og hún var, er eða mun verða. Ef vetrarbraut vor er athuguð nákvæmlega, er þar ýmislegt að sjá, en tilbreytnin er þó ótrúlega miklu minni en húast mætti við. Þetta er raunar jafnfurðulegt og hitt, hversu stjörnuþokurnar, sem rúmið skipa, virðast hver annarri líkar. Svo er að sjá sem allar þær sólstjörnur, er greindar verða í fjar- sjám nútímans, séu tiltölulega svipaðar að efnismagni. Þyngsta stjarnan, sem kunnugt er um, er ekki nema svo sem 400-föld á við hina léttustu að þyngd eða 100-föld á við sólina. Hins vegar er til- breytnin mjög mikil, að því er snertir raunverulegt ljósmagn stjúrn- anna. Innan vetrarbrautarinnar eru margar þokur. En þær eru alls ann- ars eðlis en stjörnuþokurnar utan hennar, sem eru í rauninni ekki réttnefndar því nafni. Þokur þessar innan vetrarbrautarinnar eru margar hverjar lýsandi og gerðar úr ákaflega útþynntum loftteg- undum. Eimþokur þessar mætti skoða sem mjög lausbyggðar stjörn- ur eða þá verðandi stjörnur. Þá eru þar dimmar þokur, sem skyggja víða á stjörnurnar. Þetta eru að líkindum örsmáar rykagnir, ekki öllu meiri að þvermáli en öldulengd liins sýnilega ljóss. Slík rvkský geta verið gersamlega ógagnsæ eða því sem næst, þó að mjög þunn séu. Orlítið af smágerðu dufti, sem skip og flugvélar nota á styrj- aldartímum, nægir til að hylja þau geysistóru og kolsvörtu reykjar- skýi. Þyngd rykagnanna í slíku skýi er ekki nema örlítið brot af þyngd loftsins, sem heldur því uppi. Af hlutum þeim, sem sjást innan vetrarbrautarinnar, hljóta hinar kúlumynduðu stjarnþyrpingar að vekja sérstaka athygli, en þær skipa sér með nokkuð reglulegum hætti umhverfis miðju hennar, og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.