Tímarit Máls og menningar - 01.11.1945, Blaðsíða 16
142
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
stríðs og stjórnmála í veröldinni, að þeir, sem hugsa um þau efni
eins og enn var leyfilegt að gera fyrir hálfu ári, eru nú orðnir mörg-
um öldum á eftir tímanum. Engin hugmynd þeirra samrýmist hinni
breyttu aðstöðu. Allt tal þeirra er rugl, — þar á meðal slíkt hjal
eins og heyrzt hefur í íslenzkum blöðum síðustu daga, að okkur Is-
lendingum ætti að vera einhver „vernd“ í því að hafa hér hernað-
arbækistöðvar ákveðins stórveldis í framtíðinni. Það eina sem mönn-
um er einhver hugsanleg vernd í, ef stríð verður aftur, er að vera
sem fjærst hernaðarstöðvum. Nú má segja, að það megi einu gilda
þótt vér, þessir fáu íslendingar, hyrfum úr sögunni, ef vér gætum
með afhendingu lands vors til handa Bandaríkjaher komið í veg
fyrir að bandarísk stórborg með níu milljónir manna, eins og New
York, yrði mulin mélinu smærra með kjarnorkusprengju. En það
er ekki því að heilsa. Helztu vísindamönnum kjarnorkunnar ber
saman um, að hvaða iðnaðarþjóð sem vera skal geti framleitt kjarn-
orkusprengju með misseris fyrirvara; það er talið líklegt að Ráð-
stjórnarríkin hafi til dæmis „leyndarmálið“ þegar á valdi sínu.
Hinn elskulegi tónn í ræðu Byrnes virðist næstum benda á, að slík
frétt hafi borizt til lrærri staða í Bandaríkjunum. Þessir vísinda-
menn kjarno.rkunnar hafa aftur og aftur látið hafa eftir sér, að inn-
an fárra ára þurfi ekki nema eina þvílíka sprengju til að jafna New
York algerlega við jörðu. Þeir telja, að ekki verði aðeins New
York og Lundúnir algerlega þurrkaðar út strax, heldur muni hver
einasta stórborg Bandaríkjanna og Ráðstjórnarríkjanna hverfa,
ásamt öllu kviku sem þar hrærist, á tólf fyrstu klukkutímum stríðs-
ins. Það er vitað, að vísindamenn kjarnorkunnar hafa sýnt Banda-
ríkjastjórn fram á, að slík eyðing verður óhjákvæmileg afleiðing
næstu friðslita í heiminum. Dr. Oppenheimer einn þekktasti kjarn-
orkufræðingur Bandaríkjanna telur vel geta farið svo, að 40 millj-
ónir Amerikumanna láti lífið á fyrstu mínútum næsta stríðs. Hvað
gagnar það Ameríkumönnum að hafa Keflavík eftir að New York
er orðin að púlveri? Næsta stríð verður ekki stríð í venjulegri merk-
ingu, heldur fullkomin eyðing allra sem nærri því koma. Sá sem vill
flækja íslendingum inn í slíkt stríð, hlýtur að óska þess eins að ís-
lenzka þjóðin verði afmáð af jörðinni. Ef slíkir blindir óvitar eru til