Tímarit Máls og menningar - 01.11.1945, Blaðsíða 29
THEODORA THORODDSEN:
Ekki með voru samþykki
„Nú selst á þúsundir þetta, sem fyr
var þrjátíu peninga virði.“
Svo kvað Þorsteinn Erlingsson, þegar orS lék á því, að stórgróða-
félag legði fölur á einn af okkar fegurstu og stærstu fossum til virkj-
unar. Það varð nú, sem betur fór, ekkert úr þeim kaupum. Umkomu-
laus stúlka bjargaði því máli, en nú heyrast raddir um, að oss íslend-
ingum standi til boða að heimila Bandaríkjamönnum að verða hér
til eilífs nóns, og hafa hér herstöð og flugvelli til afnota. Sennilega
er hér um einhvern stundarhagnað að ræða fyrir okkur, ef til vill
milljónir króna í stað þúsunda, sem Gullfoss var metinn á forðum,
en hver er sá Islendingur, er vilji góðfúslega láta af höndum fyrir
stopulan stundargróða það fullveldi, sem vér og forfeður vorir hafa
öldum saman barizt fyrir með djörfung og þrautseigju, og vér loks
heimtum til fulls fyrir rúmu ári síðan? Ég mun í lengstu lög vona,
að slíkir landráðamenn finnist ekki meðal vor.
011 vitum við, að vopnaðar stórþjóðir geta tekið okkur herskildi
hvenær sem þeim býður svo við að horfa, en látum þær gera það á
eigin ábyrgð, en ekki með voru samþykki.