Tímarit Máls og menningar - 01.11.1945, Page 41
r
Ur ræðu Einars Olgeirssonar,
er hann flutti við stjórnarráðshúsið 18. júní 1944
íslendingar!
Vér höfum endurreist lýðveldið á landi voru. Þjóðin hefur sjálf
tekið þessa ákvörðun. Þjóðin stendur öll að henni. íslenzka þjóðin
hefur endurreist lýðveldið sitt í trúnni á sjálfa sig, á óafsalanlegan
rétt sinn til að ráða þessu landi. Vér höfum getað gert þetta, vegna
þess að frelsisþráin hefur aldrei dáið með þjóð vorri, hvernig sem
að henni hefur verið þjarmað á undanförnum öldum. Aldrei hefur
þjóð vor misst trúna á rétt sinn, aldrei glatað að fullu voninni um
frelsið, hve djúpt sem hún sökk, hve dökkt sem virtist framundan.
Það er hinni ódrepandi seiglu undanfarinna kynslóða að þakka, að
vér, sem nú lifum, gátum gert dj arfasta drauminn þeirra að veruleika:
skapað lýðveldi á Islandi. Það er auk nafnkunnu frelsisfrömuðanna,
hundruðum najnlausra hetja að þakka, að vér getum uppskorið
ávöxtinn af erfiði þeirra í dag, — hundruðum og þúsundum forfeðra
vorra og formæðra, sem framkvæmdu á einn eða annan hátt kjörorðið
„eigi víkja“, einnig áður en Jón Sigurðsson forseti mótaði með þeirri
meginreglu þjóðfrelsisbaráttu íslendinga.
Vér höfum skapað nýtt lýðveldi í Evrópu í gær, — endurreist elzta
lýðveldi hinnar gömlu Evrópu — vopnlaust og varnarlaust mitt í ægi-
legustu orrahríð, sem yfir heimsálfu vora hefur gengið. Það verður
ekki eina lýðveldið, sem skapast í þeirri Evrópu, scm upp rís úr ragna-
rökum harðstjórnarinnar.
Það kann að virðast glæfraspil að skapa litla lýðveldið okkar vopn-
laust og varnarlaust í veröld grárri fyrir járnum en vér erum stað-
ráðnir í að tryggja raunhæft þjóðfrelsi vort engu að síður.
Vér sköpum þetta lýðveldi í trúnni á. að sú stund sé ekki fjarri, að
friðurinn, mannréttindin og þjóðfrelsið sigri í heiminum og tryggi