Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Blaðsíða 62

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1949, Blaðsíða 62
52 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ekkert annað en heimsyfirráð Bandaríkjamanna. Og á þessari kröfu voru reistar tillögur Bandaríkjamanna um eftirlit með kjarnorkufram- leiðslu. En samkvæmt þeim var það algerlega lagt á vald Bandaríkja- manna hvenær og að hve miklu leyti Rússar fengju vitneskju um leynd- armál kjarnorkunnar. Með því voru m. a. not kjarnorku til friðsam- legra þarfa lögð undir stjórn nefndar, sem öruggt var að Bandaríkja- menn hefðu jafnan meirihluta í. Blackett sýnir fram á að Rússar hlutu sjálfs sín vegna að hafna þessum tillögum. Þessar skoðanir bandarískra ráðamanna sem hér hefur verið drepið á og sífelldar ógnanir þeirra með kjarnorkusprengjum hafa vitanlega haft sín áhrif á utanríkispólitík Rússa. Svar þeirra hefur verið að tryggja landamæri sín eftir föngum og búa svo um að nágrannaríkin séu bundin þeim traustum böndum. Augljóst er að varnarmöguleikar gegn loftárásum fara vaxandi eftir því sem lengra er frá landamærum til þeirra staða sem líklegt er að á verði ráðizt. Líkurnar á því að hægt sé að hitta ákveðið skotmark fara stórum minnkandi því lengri leið sem árásarflugvélar þurfa að fara. Eldflaugar eins og Þjóðverjar notuðu í síðasta stríði draga ekki nema nokkur hundruð enskar mílur, og geta ekki á því færi hitt smærri skotmörk en meðalstórar borgir. Ef gera á árásir langt inn í óvinaland er því ekki um annað að ræða en flug- vélar. Blackett bendir á að þótt flugvélum sé sífellt að fara fram, þá kemur það engu síðar verjandanum að haldi. Stórar sprengjuflugvélar eru enn sem komið er ófærar um að verjast árásum orustuflugvéla. Séu flugárásir gerðar úr svo miklum fjarska að orustuflugvélar geti ekki fylgt sprengjuflugvélunum og verndað þær, má því búast við að verjendurnir yrðu þeim skeinuhættir, og ekki gæti orðið um mikla nákvæmni að ræða í árásunum. Árangurinn mundi verða tilgangs- lítil eyðilegging og múgdráp óbreyttra borgara, en vafasamur árangur hernaðarlega. Kenningar Blacketts verða ekki raktar frekara hér. Heildarniður- staða bókarinnar er fullkomið rothögg á kenninguna um stutta og sigursæla kjarnorkustyrjöld, jafnvel þótt miðað sé við að aðeins annar aðilinn ráði yfir kjarnorkuvopnum. Afleiðingin af þessu liggur í aug- um uppi. Ef Bandaríkjamenn hyggja á stríð gegn Rússum verða þeir annaðhvort að koma sér upp risavöxnum landher og flytja hann til Evrópu áður en stríð hefst og farið er að kasta kjarnorkusprengjum,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.