Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Side 6

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Side 6
TIMARIT MALS OG MENNINGAK Og það breytir auðvitað engu um niðurstöðuna, þó að allar þessar „vinaþjóðir“ nenta ein hafi látið sitja við mótmælin ein, þegar þær sáu að okkur var full alvara í málinu. Eðlilegt er að viðbrögð þess aðiljans sem einn hefur gert alvöru úr hótunum sínum hafi kornið flatt upp á marga Islendinga. Islantl liggur á áróðurssvæði Atlantshafsbandalags- ins, útvarpið okkar flytur nær eingöngu fréttir frá London og flest áhrifamestu blöð ís- lenzk hafa um árabil skýrt alla heimsviðburði í samræmi við brezk-bandaríska áróðurs- hagsmuni. Því hafa margir Islendingar lagt trúnað á þær fullyrðingar að m. a. Bretar bæru einstaka umhyggju fyrir rétti hinna máttarminni þjóða, og hafa rnenn þá orðið að láta bjóða sér margt: að Bretar hafi t. d. verið að tjá örsnauðri alþýðu Arabalandanna umhyggju sína með því að vera stöðugt reiðubúnir til að senda her gegn henni hvenær sem hún gerði sig líklega til að rísa upp gegn yfirstétt landa sinna; að Bretar hafi verið að tjá hinum svörtu Kenyabúum umhyggju sína með því að hundelta þá með vélbyssu- skothríð af því þeir hafa neitað að láta fáeina hvíta stórjarðeigendur fara lengur með sig eins og skepnur; að Bretar hafi verið að tjá íbúum Kýpur umhyggju sína með því að berja þar skólahörn til óbóta og taka menn af h'fi hópurn saman af því að ekki var annað ráð til að forða Kýpurbúum frá þeim voða að ráða málum sínum sjálfir. En þarna hefur einmitt brezki imperíalisminn verið að verki í allri sinni ófrýnilegu nekt. Og við íslendingar höfum verið látnir ganga í hernaðarbandalag nteð honum, í orði kveðnu til að vernda svonefnt „vestrænt frelsi". Og þetta bandalag hefur notað áróðursað- stöðu sína til að villa svo urn fyrir mönnum, að margir hafa til skamms tíma verið blindir á þá staðreynd að það er olían í Arabalöndunum, nýlenduaðstaðan í Kenya og herstöðin á Kýpur sem á umhyggju Breta en ekki það fólk sem þarna byggir. Á meðan stjórnmála- menn boðuðu okkur Islendingum „vestrænt frelsi" í faguryrtum skálaræðum, urðu sem sé ýmsar aðrar þjóðir að heyra boðskap þess fluttan af gínandi byssukjöftum. En nú hefur orðið hlé á skálaræðum og byssukjaftar „vestræns frelsis" verið látnir taka að sér röksemdafærsluna, þar sem sléttmælgi stjórnmálámanna dugði ekki lengur. Brezki imperíalisminn hefur kastað grímunni gagnvart okkur Islendingum. Með skipulögðum landhelgisbrotum, með síendurteknum tilraunum til að sigla niður hin litlu varðskip okk- ar, með ósvífnum orðhákshætti um ofbeldishneigð af hálfu þessarar fámennu vopnlausu þjóðar, hefur brezki imperíalisminn tekið til við að tjá okkur íslendingum þá sérstöku umhyggju sem liann hefur um aldir verið að sýna máttarminni þjóðiun. Vörnum „vest- ræns frelsis" hefur verið snúið gegn okkur í gervi gapandi byssukjafta. Er furða þótt mörgurn íslendingum, eftir undangenginn áróður, hafi brugðið að sjá grímulaust andlitið á þessum marglofaða bandamanni okkar. En jafnframt ber að fagna því að ofríki hans hefur ekki megnað að skelfa þjóðina, heldur stælt með henni djörfung og kjark í svo ríkum rnæli að við getuni enn verið hreyknir af því að heita íslendingar. En hins ber að gæta að tími blekkinganna er ekki liðinn. Þjóðin verður að standa vel á verði. Til eru stjórnmálamenn sem brugðizt hafa í helgustu málum hennar, og þeir gætu ennþá brugðizt. Það var einhugur þjóðarinnar og festa og liarðfylgi einstakra áhrifa- manna, og þá fyrsl og fremst Lúðvíks Jósepssonar sjávarútvegsmálaráðherra, sent knúði landhelgismálið frarn til þess áfanga sem nú hefur náðst. En lokasigur hefur enn ekki unnizt. Málið er enn í hættu. Enn reynir á einhug, harðfylgi og óbugandi festu þjóðar- innar. 180
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.