Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Page 36
TIMARIT MALS OG MEKNINGAR
þannig írá þessum flugvélum gengið
að þær eiga ekki að glopra úr sér
sprengjum, né heldur hrapa sjálfar,
og samt kemur sem sagt fyrir að þær
glopra úr sér sprengjum, og jafn-
vel hrapa sjálfar. Kynni ekki að
gegna svipuðu máli um sprengjur,
sem eiga ekki að springa, að komið
gæti fyrir að þær spryngju samt? Auk
þess sem herflugmenn eru þó ekki
nema menn, og þoli mannlegs tauga-
kerfis eru takmörk sett sem kunnugt
er. Það er til dæmis nokkuð annað að
fljúga með venjulega farþega og póst,
heldur en fljúga með þá grísi og þau
alisvín sem stríðsæsingamenn fóðra
með óvild þeirri, hatri og tortryggni
sem tröllríður mannkyninu. Gæti ekki
hugsazt, að einn góðan veðurdag yrði
návist slíkra farþega slík ofraun fyrir
taugarnar í einhverjum þeirra hundr-
aða og jafnvel þúsunda herflugmanna
sem að staðaldri fljúga með þá í vél-
um sínum, að hann gripi til þess í
brjálæði að tengja saman öryggis-
kveikjurnar í grísnum sínum eða ali-
svíninu, og opna síðan hlerana á
sprengjuhólfinu?
Já, ég spyr enn: Erum við íslend-
ingar allra þjóða heimskastir og sljó-
astir? Lítum til dæmis á alþingismenn
okkar, þessa traustu og alvörugefnu
menn sem oft virðast ekki geta sofið
fvrir ábyrgðartilfinningu gagnvart
minkaplágu og öðrum slíkum vanda,
hvar er ábyrgðartilfinning þeirra
gagnvart ógnum kjarnorkukapp-
hlaupsins? Hafa þeir ekki gert sitt
ítrasta til að bægja þeim ógnum frá
þjóðinni? Til dæmis í fyrravetur
þegar fréttist um vetnissprengjuflug-
ið yfir Bretlandi, risu þá ekki þing-
menn okkar upp í öllu veldi sinnar
miklu ábyrgðartilfinningar og kröfð-
ust þess að komið yrði á tryggu eftir-
liti með því að svo ægilegur glæfra-
skapur ætti sér ekki einnig stað í
hernaðarflugi Bandaríkjamanna hér
yfir Islandi? Nei, ekki aldeilis. Þá
var ekki erfitt að sofa fyrir áhyggjum.
Þá var allt í einu búið með alla
ábyrgðartilfinningu hjá þessum
mönnum. Hún virðist sem sé enda þar
sem skottið á minknum endar.
Eða töldu þeir sig með öllu lausa
þessara mála með þeirri yfirlýsingu
forsætisráðherra að Bandaríkjamönn-
um yrði ekki leyft að koma hér upp
eldflaugastöðvum né birgðum af
kjarnorkuvopnum? Þó hygg ég að
ekki þurfi einu sinni venjulega þing-
mannsgreind til að sjá að sú yfirlýs-
ing hrekkur harla skammt til trygg-
ingar gegn þeim voða sem á ferðum
er. Það er í fyrsta lagi algjört vafa-
mál hvort forsætisráðherra hefur
nokkra aðstöðu til að fylgjast með
því sem gerist bak við harðlæstar
girðingar hernaðarleyndarmála á
Keflavíkurflugvelli. En hitt er alveg
víst, að þær bandarískar hernaðar-
flugvélar, sem fara um Keflavíkur-
flugvöll á ferðum sínum milli Ame-
ríku og Evrópu, geta flutt með sér
210