Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Síða 56
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ískum gerðum (mestmegnis kopíur aí
Ford og Chevrolet frá 1946).
Því miður vantar fleira en bíla. Ég
hef heyrt menn í ýmsum löndum lúka
lofsorði á utanríkisverslun pólverja,
en innanríkisverslun þeirra virðist
nokkuð fátækleg. Sú vara sem fyrir-
finst í búðargluggum við höfuðstræti
Varsjövu mundi ekki þykja eftirsókn-
arverð jafnvel í afskektum sveitakaup-
stöðum í Skandínavíu. Landið hefur
bersýnilega enn ekki komist í straum
almennrar heimsverslunar. En þeir
sögðu að þetta hefði verið enn verra
fyrir nokkrum misserum, þá hefðu
ekki einusinni feingist hversdagsleg-
ustu búshlutir; töldu að nú væri þetta
að byrja að lagast.
Okkur hefur verið kent og margur
trúað því að sósíalismi þýddi meðal
annars hjarðir af feitum troðjúgra
kúm í afgirtum högum svipað og t. d.
í Danmörku; en ef satt er að sósíal-
ismi ríki í Póllandi, og þó ekki væri
nema að formi til, virðist sem þessi
hugmynd þarfnist nokkurrar endur-
skoðunar. Eitt af því skrýtnasta sem
fyrir augun ber hvar sem maður ekur
um Pólland er karl, kona eða únglíng-
ur sem stendur lon og don yfir heldur
rýrrikú (einstökusinnum tveimur, ör-
sjaldan fleiruin), og virðist hafa það
starf með höndum að bíða meðan
skepnan fylli sig. Þessi vinna er ein-
hver andsósíalistiskust starfsemi sem
ég hef horft uppá í landbúnaði. Sé
gert ráð fyrir að sá sem stendur yfir
kúnni sé liðléttíngur og fái ekki meira
kaup en hundrað og tuttugu krónur
íslenskar á dag, þá hljóta þó þessi
daglaun að leggjast á mjólkina úr
kúnni til viðbótar við annan kostnað.
Fyrir þetta lága dagkaup mundu á Is-
landi fást 25—30 lítrar af mjólk í
mjólkurbúð. Ég geri ráð fyrir að það
sé velílagt að hálf lítilfjörlegur gripur
í snulturhögum frammeð járnbraut-
um mjólki tíu lítra á dag (tuttugu
merkur); það eitt að standa yfir
kúnni meðan hún fyllir sig mundi þá
kosta tíu til tólf krónur á hvern
mjólkurlítra. Ég veit ekki gjörla undir
hvaða tegund atvinnuleysis ætti að
flokka gerðalag slíkt sem það að
hánga allan daginn yfir einni kýr-
skepnu. Eða er þetta ein af bardaga-
aðferðum bænda gegn sósíalisma?
Pólverjar sögðu mér að lýsumatur
væri fáséður hjá þeim, einkum í borg-
um, smjör og ostar torgæti hjá al-
menníngi. Okkur íslendíngum sem er-
um þó bara hálfsósíalistiskir finst
þetta eingin smáfurða í landi sem tel-
ur sig alsósíalistiskt og er þaraðauki
einn óslitinn töðuvöllur og grashagi
— það sem ekki er akur; okkur sem
búum við grjót og aftur grjót, en
drekkum þó háttuppí mjólkurlítra
daglega á hvert mannsbarn, finst að
ef við ættum slíka paradís til landbún-
aðar sem Sléttumannaland, þá mund-
um við drekkja heiminum í mjólk.
Það dregur ekki heldur úr furðu
gestsins að sjá aftur og aftur í Var-
230