Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Page 84
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR mælt í innfluttu vörunni, að vaxa og þá jafnframt raunveruleg laun. í klassísku kenningunni er ekki gert ráð fyrir, að hlutfallsleg breyting geti orðið í launagreiðslum til einstakra þátta. Án þess að úr gildi niðurstaðnanna dragi, hefur þannig verið fallið frá þessum þeirra forsenda, sem rök- semdafærslunni voru í upphafi settar: að aðeins sé um tvær vörur að ræða; að verzlun milli landa leiði ekki til sérhæfingar; og að tilkostnaður á einingu breytist eftir framleiðslu- magni. Niðurstöðurnar eru ennþá bundnar þeim skilyrðum, að fram- leiðsluþættirnir séu aðeins tveir og af skornum (tilteknum) skammti; að framleiðslulíkingarnar séu algerlega eins í báðum löndunum; og að vinnu- afl sé fullnýtt. Vakið er máls á, að verzlun milli landa þurfi ekki að leiða til verðjöfn- unar framleiðsluþátta, ef þættirnir eru fleiri en tveir. Ef framleiðsluþætt- ir eru fleiri en tveir getur auk þess verið erfitt að greina milli algengra og fágætra framleiðsluþátta. Ef fram- leiðsluþættirnir eru þrír eða fleiri fer gildi niðurstaðnanna að verða vafa undirorpið. Af svipuðum ástæðum dregur það úr gildi niðurstaðnanna, ef framleiðslulíkingar landanna eru ekki sams konar.1 Ekki verður farið í grafgötur með afleiðingar þess, að vinnuafl sé nýtt til fullnustu. Þrátt fyrir þessa fyrirvara segja W. Stolper og P. A. Samuelson í ritgerð sinni: „Með þessu er ekki sagt, að niðurstöður okkar standi eða falli með kennisetningu Hekschers og Ohlins. Þótt framleiðsluþættir verði ekki bornir saman milli landa og þótt framleiðslulíkingar þeirra séu ólíkar, hlýtur verzlun milli landa samt sem áður að hafa áhrif á raunveruleg laun þátta í sömu átt og á hlutfallslegt kaupgjald þeirra, þegar framleiðslu- þættirnir eru aðeins tveir.“ Að lokum er farið fáeinum orðum um áhrif tollverndar á raunveruleg laun og komizt svo að orði: „í Ástral- íu, þar sem land getur talizt vera mik- ið í hlutfalli við vinnuafl, kann toll- vernd að geta aukið raunveruleg laun verkamanna. Ef til vill hefur þessum málum verið þannig farið í Banda- ríkjunum á nýlenduskeiði þeirra.“ II. Eins og þessi úrdráttur úr ritgerð W. Stolpers og P. A. Samuelsons ber 1) Við greinina endurprentaða er bætt þessari athugasemd neðanmáls: „Sá yngri höf- undanna, P. A. S., skipti um skoðun á þessum efnum 1946 og hefur síðan litið svo á, að með notkun kennisetningar Ohlins (og Heckschers) verði komizt að þeirri niðurstöðu, að verzlun milli landa leiði til algerrar verðjöfnunar framleiðsluþátta, án tillits til fjölda vara, svæða eða framleiðsluþátta, ef haldið er áfram að framleiða eitthvert magn af hverri vöru um sig.“ 258
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.