Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Side 94
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Æ fleiri þúsundir vísindamanna sem gerst mega þekkja þetta „leikfang“
stórveldanna, hafa síöan tekiö undir hróp hans.
Af örfáum dæmum úr þeim aragrúa vitnisburða, sem vísindamenn og her-
fræðingar hafa borið um hin nýju ógnarvopn, getur hver maður sett sér þann
dag fyrir sjónir, sem rísa kynni í nálægri svipan yfir mannheim: dag hinnar
þriðju heimsstyrjaldar — og hinnar síðustu.
Ur erindi prófessors Þorbjarnar Sigurgeirssonar
á íundinum í Gamla bíói 30. marz s.l.
Á fundi, sem haldinn var að forgöngu rithöfunda í Gamla bíói sunnudaginn
30. marz s.l., flutti prófessor Þorbjörn Sigurgeirsson erindi um eyðingar-
mátt kjarnorkusprengna, en hann er fróðastur allra íslenzkra manna um þessi
efni. í upphafi máls síns skýrði hann í höfuðdráttum gerð úraníumsprengj-
unnar — en það var slík sprengja, sem varpað var á Hírósíma 6. ágúst 1945
með þeim afleiðingum að 100 þúsund manns dóu, en aðrar hundrað þúsundir
særðust. Þegar prófessor Þorbjörn hafði fjallað um áhrif slíkra sprenginga
á mannvirki, sagði hann m. a.:
„Þegar dæma skal áhrif sprenginganna á menn og aðrar lifandi verur kemur
fleira til greina. Að sjálfsögðu eru líkurnar fyrir því að menn komist lífs af úr
slíkri sprengingu mjög litlar ef þeir eru nær sprengistaðnum en 1 km, sprengju-
verkanirnar sjá fyrir því og auk þess myndu menn brenna til ólífis ef hitageisl-
unin næði að falla á bera húð. Hœttulegs bruna á skinni gœtir út í nokkurra
kílómetra jjarlœgð frá sprengistaðnum. En jajnvel þó að maður, sem verið
hejur innan kílómeters jjarlœgðar jrá sprengistaðnum, ha/i verið svo hepp-
inn að sleppa jrá sprengingunni og hafi verið í vari fyrir hitageislunum, þá
eru þó allar líkur til þess að hann liji ekki lengi. Fyrir því sjá bæði gamma-
geislar og nevtrónur, sem sprengjan sendir frá sér. Gammageislunum svipar til
röntgengeisla. Ef líkaminn fær of stóran skammt af þeim er dauðinn vís eftir
nokkra daga, eða nokkrar vikur. Verkanir nevtrónanna eru frábrugðnar að
því leyti, að þær skapa geislavirk efni í líkamanum, sem halda áfram að senda
frá sér hættulega geisla eftir að sprengingin er afstaðin. Bæði nevtrónur og
gammageislar smjúga mjög auðveldlega í gegnum hverskonar efni og venju-
legar byggingar veita aðeins ófullkomna vörn gegn þeim. Það má því segja að
vegna geislunar þessarar einnar saman séu allar lifandi verur sem eru minna
en 1 km frá sprengistaðnum í yfirvofandi lífshættu og í nokkurra kílómetra
fjarlægð geta menn orðið fyrir varanlegu heilsutjóni.
268